fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Guðmundur lýsir Vinstri grænum sem ófríðum, leiðinlegum og getulausum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 15. október 2018 09:56

Katrín Jakobsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Brynjólfsson, rithöfundur og djákni, dregur upp dökka mynd af dæmigerðum stuðningsmönnum Vinstri grænna í Bakþanka Fréttablaðsins. Hann lýsir hjónum sem hann séu ljót, leiðinleg og með blæti fyrir öllu sænsku. VG-hjónin eru barnslaus vegna legnáms konunnar og spyr Guðmundur að lokum hvort það sé skrýtið að flokkurinn sé getulaus.

Guðmundur Brynjólfsson

„Hún var ófríð. Klæddi sig sundurlaust og yfirleitt í drapplit föt. Venjulega í þvældri popplínkápu í grámóskulegum lit, ætíð í brúnum buxum úr einhverju því efni sem alltaf sýndist skítugt. Oft í litlausum óburstuðum skóm en til spari hafði hún rúskinnsskó flatbotna, útjaskaða á hælunum og var storkin selta á tánum. Vann vestur í Háskóla, á Raunvísindastofnun eða ámóta batteríi, þar setti hún línurit í möppur og skráði niður tölur, tölur sem vörðuðu eyðingu jökla. Í hverju hádegishléi gekk hún niður í Norræna hús og kíkti í sænsku dagblöðin en hún hafði búið fjögur ár í Lundi, þá var maðurinn hennar að taka gráðu í stærðfræðilegri efnafræði,“ segir Guðmundur.

Því næst lýsir hann eiginmanninum og er sú lýsing síst skárri. „Hann kenndi við menntaskóla. Ég vissi aldrei hvaða skóla enda fór lítið fyrir manninum. Þau drukku eina rauðvínsflösku á hverju kvöldi og ýmist lásu eða hlustuðu á Rás eitt – þau voru ekki með sjónvarp. Hann var þjakaður af flösuexemi og hreistraði alveg hroðalega á veturna, því lét hann lítið fyrir sér fara og fór ekki neitt nema til og frá vinnu,“ segir Guðmundur.

Að lokum lýsir hann því hvers vegna þessi hjón séu barnslaus. „Aftur á móti tók hún virkan þátt í félagsstörfum. Var í stjórn Friðarsamtaka kvenna og virk í Norræna félaginu og einu sinni á ári fór hún í gönguferð með Ferðafélagi Íslands og sótti myndakvöld í þeim félagsskap á vetrum. Hún var virk í kór sem námsmenn í Lundi höfðu stofnað haustið 1976 en sá hópur hélt vel saman og söng sér til ánægju einu sinni í viku á veturna. Þau áttu ekki börn því hún hafði farið í legnám sem ung kona vegna þrálátra ígerða og var barnleysið þeim nokkur raun. Sérstaklega honum því hann var barngóður. Hún var fálátari við börn og leiðinleg manneskja. Er nokkuð skrítið þótt VG sé getulaus flokkur?,“ spyr Guðmundur.

Pistillinn hefur hlotið nokkra gagnrýni á Twitter en einn þeirra sem gagnrýnir hann er Snæbjörn Brynjarsson, rithöfundur og Pírati.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“