fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Guðmundur ber Kristinn saman við Trump: „Hann heitir Kristinn og var næstum því að eyðileggja vinnustað“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 15. október 2018 09:26

Guðmundur Steingrímsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Steingrímsson, fyrrverandi formaður Bjartrar framtíðar, segir í pistli sem birtist í Fréttablaðinu í dag að í veröld þar sem fáránlegar skoðanir séu algengar sé best að leyfa fólki að viðra þær. Hann vísar sérstaklega til máls Kristins Sigurjónsson, fyrrverandi lektors við HR, sem var rekinn fyrir skoðanir sínar á konum.

Guðmundur vísar fyrst til þáttanna This is America með Sacha Baron Cohen. „Í veröldinni er enginn skortur á fáránlegum skoðunum. Eins og breski háðfuglinn Sacha Baron Cohen hefur afhjúpað í stórbrotinni þáttagerð í Bandaríkjunum undanfarið er til fólk sem er með svo stórundarlegar skoðanir að maður skilur ekki hvernig því getur mögulega verið alvara. Það hlýtur að vera að grínast.

„En það er ekki að grínast. Til eru stjórnmálamenn sem telja skynsamlegt að börn á leikskólaaldri beri byssur. Í þætti Cohens færa nokkrir bandarískir þingmenn rök fyrir þessari skoðun sinni. Lobbíisti fyrir réttindum byssueigenda heldur því fram að þriggja ára börn séu betri en fullorðnir í að meðhöndla byssu, því börn myndu ekki hika við að skjóta strax geðtruflað fólk sem hótaði því með skotvopni. Fullorðnir hika stundum vegna siðferðislegra álitaefna, sem er slæmt,“ segir Guðmundur.

Guðmundur líkir svo Kristni við forseta Bandaríkjanna, Donald Trump. „Hvað á að gera í þessu? Er ástæða til að hafa áhyggjur af þessu eða er þetta bara hluti af því að vera til og svífa um í geimnum með sjö milljörðum annarra misgáfulegra jarðarbúa? Ég hallast að því. Þetta er órjúfanlegur hluti mannlífsins. Stundum finnst manni jú ástæða til að hafa áhyggjur, sérstaklega þegar um áhrifafólk er að ræða. Í áhrifastöðum er magn furðulegra skoðana síst minna. Leiðtogi hins frjálsa heims, svokallaður, fer fremstur í flokki þessi misserin og hreinlega spúir yfir heimsbyggðina á degi hverjum kexrugluðum viðhorfum sínum. Hann og margir aðrir kollegar hans í stjórnmálastétt trúa því til dæmis ekki að magn gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu sé vá. Þeir telja að það þurfti ekki að hafa neinar sérstakar áhyggjur af hlýnun jarðar. Bara svo dæmi sé tekið. Og Trump telur líka að það sé í lagi að grípa í klofið á konum, bara sí svona og fyrirvaralaust sé maður í stuði. Og hér á Íslandi er semsagt til a.m.k. einn karl sem telur að konur eyðileggi vinnustaði. Hann heitir Kristinn og var næstum því að eyðileggja vinnustað,“ segir Guðmundur.

Hann segist ekki bjartsýnn á að hægt sé að berja niður skoðanir. „Margir telja til dæmis að það eigi ekki að gefa alls konar viðurstyggilegum sjónarmiðum rasista byr undir báða vængi með því að ræða þau. Betra sé að ræða þau ekki. Ég finn sterkt þessa tilhneigingu í eigin brjósti. Ég hef ríka þörf til að líta svo á að best sé að segja einfaldlega við rasista að hann eigi að hoppa upp í afturendann á sér. En á móti kemur að einhver besta rökræða sem ég hef séð í sjónvarpi var rökræða milli innflytjanda og rasista í breskum fréttaskýringaþætti. Hún var hreinasta konfekt. Innflytjandinn tók rasistann svo rosalega í bakaríið, með staðreyndum og tölum, að rasistinn var eins og reytt hæna á eftir. Síðan þá hallast ég svolítið að þessu: Í veröld fáránlegra skoðana er aðeins ein leið fær. Hún er sú að hafa trú á lýðræði, opinni umræðu, upplýsingum, staðreyndum og rökum. Semsagt: Látum Kristin standa fyrir máli sínu,“ segir Guðmundur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“