Verslunin Kjöt & fiskur mun loka í kvöld klukkan 19:00. Þetta staðfesti starfsmaður verslunarinnar í samtali við DV. Þá hafa eigendur birt yfirlýsingu á Facebook þar sem kemur fram að skellt verði í lás fyrir fullt og allt. Áður hafði Kjöt & fiskur rifað seglin og lokað verslun á Garðatorgi . Eigendur verslunarinnar eru körfuboltakapparnir Pavel Ermolinskij og Jón Arnór Stefánsson. Verslunin sem var stofnuð árið 2014 áttu nokkurn fjölda fastakúnna en það dugði ekki til.
„Við lokuðum Garðartorginu í janúar og þetta er síðasti dagurinn hjá okkur á Bergstaðastrætinu. Reksturinn svarar ekki kostnaði, það gengur ekki upp lengur að hafa þessa verslun opna,“ sagði starfsmaður verslunarinnar í samtali við DV.
Í tilkynningu á Facebook-segir:
„Það hefur verið frábært að vera hluti af hverfinu undanfarin fimm ár og það sem stendur upp úr er allt frábæra fólkið sem við höfum kynnst á leiðinni, starfsfólkið okkar og viðskiptavinir.
Við viljum þakka öllum þeim sem að lögðu leið sína til okkar í gegnum árin og gerðu vinnuna okkar svona skemmtilega og gefandi. Takk kærlega fyrir okkur.“