11. júní, 1981, myrti Japaninn Issei Sagawa hollenskan námsmann, Renée Hartevelt. Renée var bekkjarsystir Issei í Sorbonne-háskólanum í París. Issei hafði boðið Renée til kvöldverðar og hún hafði þekkst boðið. Ekki grunaði hana að hún sjálf væri á matseðlinum. Issei skaut Renée til bana og hófst síðan handa við matseld. Áður hafði hann þó misnotað líkið kynferðislega. Issei var úrskurðaður geðveikur og var vistaður á geðsjúkrahúsi. Í ágúst 1986 skráði hann sig sjálfur út af stofnuninni og hefur verið frjáls maður síðan.