„Ef við viljum að gestir okkar gangi sómasamlega um þá verðum við að bjóða upp á almennilega þjónustu til slíks,“ segir Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari í samtali við DV en meðfylgjandi ljósmyndir tók hann af salernisaðstöðu sem komið hefur verið upp við Grjótagjá í Mývatnssveit.
Greint var frá því á vef Morgunblaðsins þann 11. júlí síðastliðinn að búið væri að loka fyrir aðgengi að Kvennagjánni í Grjótagjá. Ástæðan er sóðaleg umgengi ferðamanna.
Í samtali við vefinn sagði Ólöf Hallgrímsdóttir, einn landeigenda að um væri að ræða tímabunda lokun á meðan beðið væri eftir deiliskipulagi fyrir landsvæðið.
Fram kom að umgengnin í hellinum væri oft á tíðum afar slæm. Vinsælt hefur verið á meðal ferðamanna að baða sig í hellinum en á svæðinu er skilti þar sem fram kemur að baðferðir séu bannaðar.
„Þarna er fólk að hafa hægðir, þvo skóna sína, þvo leirtauið, bursta tennurnar og einnig hafa sumir sofið þarna í gjánni.“
Þá kom fram að búið væri að setja þurrkamra og bílastæði á svæðinu til að reyna að stemma stigu við þessu vandamáli.
Meðfylgjandi ljósmyndir sýna aðstöðuna við Grjótagjá eins og hún blasti við Guðmundi Ingólfssyni á dögunum. Óþarfi er að lýsa myndefninu nánar en í færslunni gagnrýnir Guðmundur ferðaþjónustuna í Mývatnssveit og bendir á að breytinga sé þörf.
„Ég kom þarna sunnudaginn 12.8.18 og sá kamar og rauðbleikan bauk til að greiða í fyrir þægindin og gerði svo og síðan blasti þjónustan við mér.
Rétt er að vara við myndum þessum eins og þeir segja í sjónvarpinu. Mikill ferðamannastraumur er við Mývatn og líklega hafa heimamenn þénust af en þá þarf líka þjónustu.“
Í frétt DV á dögunum var einnig greint frá afleitri salernisafstöðu fyrir gesti á Þingvöllum. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá salerni sem eru yfirfull af mannaskít og pappír.
Í samtali við DV segir rútubílstjóri sem tók myndbandið, að aðstaðan sé svona alla daga, ekki sé um tilfallandi ástand að ræða. „Þetta er magnað að upp í toppi eru salerni þar sem kostar 200 kr. fyrir mann. Samt erum við að borga rútugjald fyrir hverja rútu, 1.500-3.000 kr. Einu fríu salernin hér eru þessir kamrar og þau eru alltaf yfirfull og ég hef aldrei séð starfsmann fara þar inn.“