fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Lalli Johns lifir: Edrú í fjögur ár en dreymir stundum um partí

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 17. janúar 2018 16:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lalli Johns látinn. Lalli Johns dáinn. Þetta eru tvær uppástungur sem leitarforritið Google stingur upp á ef slegið er inn nafni eins frægasta glæpamanns Íslandssögunnar. Það er ljóst á leitarforritinu að Íslendingar hafa áhuga á að vita hvar Lalli er niðurkominn. Hann sló í gegn í heimildamynd Þorfinns Guðnasonar og heillaði þjóðina. Í kjölfarið varð hann landsþekktur. En Lárus Björn Svavarsson, betur þekktur sem Lalli, er ekki dáinn. Hann er í fullu fjöri, orðinn 67 ára löggilt gamalmenni sem hefur ekki bragðað dropa af áfengi síðustu fjögur árin. Hann er búsettur á áfangaheimili þar sem hann hefur það bærilegt.

„Ég tók bara einn dag í einu og allt í einu var liðið ár“

Blaðamaður DV hitti Lalla á heimili systur hans, Rósu Ólafar Ólafíudóttur, en hún hefur verið stoð hans og stytta í baráttu hans við Bakkus. Lalli gerir ekki ýkja mikið úr freistingum vínsins en segist þó oft dreyma að hann sé staddur í trylltu samkvæmi. Þá fer hann í göngutúr til að losa sig við djammdrauma næturinnar.

„Ég finn alveg breytingu síðan ég hætti þessu vínrugli. Mér hefur liðið mun betur,“ segir Lalli en viðurkennir að stöku sinnum finni hann til söknuðar þegar hann hugsi til baka. „Mig dreymir oft eitthvert partírugl. Ég vakna oft á nóttunni við það að mér finnst ég vera í glymjandi partíi en er samt bara í tómu rúmi. Jú, jú, oft er mér hugsað til gamla lífsins. Stundum hef ég vaknað á morgnana við draumana, þá farið á fætur og fengið mér göngutúr. Ég hef reynt að fylgja reglum hússins svo þeir hafi ekkert á mig. Ég reyni að vera einu skrefi á undan þeim,“ segir Lalli og hlær.

Breiðavíkurmálið vendipunktur

Lalli segist hafa jákvæðnina að leiðarljósi.
Hress Lalli segist hafa jákvæðnina að leiðarljósi.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Aðspurður hvernig hafi staðið á því að hann hafi ákveðið að hætta að drekka fyrir um tíu árum nefnir Lalli fyrst að hann hafi staðið í strembnum flutningum. Þá grípur Rósa fram í og spyr hvort Breiðavíkurmálið hafi ekki haft áhrif. Lalli viðurkennir það. „Það var vendipunktur, það var opinberað og þú varst beðinn afsökunar. Öll þessi umræða,“ segir Rósa. „Jú,“ segir Lalli og bætir við að hann hafi aldrei fengið allar þær bætur sem honum var lofað.

Lalli var í fjögur ár á vistheimilinu á Breiðavík þar sem börn voru beitt fáheyrðri harðneskju og öllum útgáfum ofbeldis. „Þetta var ekki bara á Breiðavík, en Breiðavík var versti punkturinn af þessu. Heimavistarskólinn að Jaðri og Reykjahlíð, það voru heimili sem ég var ekkert voðalega ánægður með að vera á. Þegar ég var laus við þessi heimili þá var það spurningin: „Hvað á ég að gera við framtíð mína og hvernig verður hún?“ Verður hún björt eða svört? En með árunum þá hef ég náð að sætta mig við suma hluti, ekki alla. Ég hef reynt að fylla upp í eyðurnar en sumt er vont að vinna til baka. Svona var þetta þegar ég var yngri, en þetta átti ekki að fara svona. Þetta átti að fara öðruvísi. Ég reyndi að vinna úr því, ef maður er jákvæður hefur það góð áhrif,“ segir Lalli.

Fékk aldrei allar bæturnar

Í viðtali við DV árið 2007 sagði Lalli frá þeim pyntingum sem hann varð fyrir á Breiðavík. Hann hélt því fram að sennilega hafi forstöðumaðurinn, Þórhallur Hálfdánarson, haft ánægju af því að pína börn. Þar fékk hann lítið að borða, var neyddur til að vinna myrkranna milli og lítið fór fyrir námi. Í viðtalinu sagði hann frá einu ömurlegu atviki:

„Ég var háttaður úr öllum fötunum og settur í síldartunnu fulla af ísköldu vatni. Ég hét því að ég skyldi ekki láta vatnið sigra mig frekar en þau,“ sagði Lalli en eftir þetta ákvað hann að strjúka. Annar piltur kjaftaði og sá var beittur hrottalegu ofbeldi. „Hann var bara tekinn og barinn og ég var látinn þrífa blóðið sem gekk úr andlitinu á honum. Ég féll í yfirlið og því var haldið fram að ég væri að leika til að draga að mér athygli.“

Lalli segist nú aldrei hafa fengið allar þær sanngirnisbætur sem honum hafði verið lofað. „Ég var eiginlega svikinn í Breiðavíkurmálinu. Ég fékk eina og hálfa milljón en svo átti ég að fá meira átján mánuðum seinna. Það fékk ég aldrei. Ég er með pappíra upp á það. Þeir sögðu að ég ætti að fá þrjár eða fjórar milljónir, þeir sviku mig um það. Ég fékk pappírana óundirritaða, en síðan dróst það og þá féll málið niður dautt. Ég vissi ekki hvert ég átti að leita, og hefði átt að gera eitthvað í því,“ segir Lalli.

Ríflega 20 ár í fangelsi

„Þetta átti að fara öðruvísi“

Rósa bendir á að Lalli hafi ekki farið í fangelsi síðan Breiðavíkurmálið komst í umræðuna. Lalli hlaut síðast dóm árið 2009, fyrir innbrot í Hveragerði árið áður. Sá dómur var að mörgu leyti dæmigerður fyrir Lalla. Kona búsett í Hveragerði, Guðrún nokkur, kom að Lalla í íbúð sinni og spurði „hvern fjandann hann væri að gera þarna“. Lalli sagðist vera að leita að síma til að hringja í leigubíl. Guðrún sá þó skartgripi sína liggja á rúminu og tók þá í jakkaboðunginn á Lalla og dröslaði honum með sér inn í stofu. Þegar lögregla mætti á vettvang sat Lalli hinn rólegasti í stól í garðinum. Fyrir þetta fékk Lalli tíu mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm. Hans síðasta dóm.

Lalli er sennilega meðal þeirra lifandi Íslendinga sem hafa setið lengst í fangelsi. Í dómi sem hann fékk árið 2006 er ferill hans tíundaður. Þá hafði hann hlotið 42 refsidóma frá árinu 1969 nær eingöngu fyrir þjófnað en Lalli var átján ára þegar hann var fyrst leiddur fyrir dómara. Lalli hefur samtals verið dæmdur í rúmlega 20 ára óskilorðsbundið fangelsi.

Rósa systir hans segir augljóst að tími hans á Breiðavík hafi markað djúp spor. „Hann hefur ekki komið inn í fangelsi síðan byrjað var að ræða málið opinberlega og hann var síafbrotamaður í fjörutíu ár. Það byrjaði svo snemma, strax eftir Breiðavík. Hann var unglingur þegar hann kom þaðan og var þar í fjögur ár. Síðan var það bara Hraunið í fjörutíu ár,“ segir Rósa.

Hraunið var heimilið

Lalli segist að mörgu leyti hafa á þessum árum einfaldlega búið í fangelsinu. „Þessir fangelsisdómar sem ég fékk voru yfirleitt stuttir. Þetta voru svona fjórir til sex mánuðir en svo losnar maður út á milli en lendir þá á götunni aftur. Ég fékk aldrei neina aðstoð til að rétta mig við. Þetta varð vítahringur. Ef ég reyndi að vinna mig úr þessum vítahring og talaði við þá menn sem voru með þessi mál, þá hlustuðu þeir ekkert á mig,“ segir Lalli.

„Þetta var yfirleitt þannig að þú fórst í fangelsi og þegar þú komst út þá fórstu bara beint á götuna. Eða þá að þú hafðir ekkert húsnæði til að fara í og þá lá leiðin beint í óregluna og sukkið. Svona var þetta bara um tíma. Eins og ég segi þá dreymir mig oft svona partí, en þegar ég vakna man ég að ég á ekki dóm yfir höfði mér. Þá hugsa ég að það sé gott að vera ekki kominn þarna austur á Hraunið, að vera laus við það,“ segir Lalli og bætir við að hann velti fyrir sér hvort draumarnir sé leið heilans til að vinna úr þeim ógöngum sem hann hefur lent í.

Uppástungur Google af andláti Lalla eru stórlega ýktar.
Lalli lifir Uppástungur Google af andláti Lalla eru stórlega ýktar.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ekki laus við sígaretturnar

Lalli segir að slæm veikindi fyrir um tíu árum hafi líka haft sitt að segja um þá ákvörðun hans að setja tappann í flöskuna. „Svo var það þannig að ég var á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti og þá fékk ég matareitrun. Ég endaði upp á Borgarspítala og var þar í 21 dag. Þetta voru heiftarleg veikindi. Svo fór ég aftur á Hlaðgerðarkot og þá náði ég að vera edrú í um eitt ár. Þá flutti ég á Héðinsgötu og bý þar núna. Það er stutt að fara á AA-fundina – bara yfir götuna,“ segir Lalli.

Heilsa Lalla er merkilega góð miðað við óheilbrigt líferni í marga áratugi. „Heilsan er nokkuð góð miðað við aldur og fyrri störf. Ég hef ekkert verið að leita mér að vinnu. Ég hef bara verið öryrki og verið í Draumasetrinu. Farið allar þær ferðir sem ég hef þurft að fara og ef ég hef þurft að fara eitthvert sérstaklega þá er mér skutlað í bíl,“ segir Lalli.

Þótt Lalla hafi tekist að losa sig alveg við vínið þá eru sígaretturnar snúnari andstæðingur. „Maður er enn þá að dragast með þessar helvítis sígarettur en ég er að reyna að hætta. Ég er kominn niður í fimm sígarettur á dag. Mér hefur tekist að halda því í föstum skorðum,“ segir Lalli.

Datt í það vegna tröppugangs

Á síðustu tíu árum hefur Lalli misstigið sig í eitt skipti. „Þegar ég var að koma mér fyrir á Héðinsgötu þá var svolítil traffík, inn og út. Svo ég datt í það þar, því það var svo mikill tröppugangur og óregla. En svo ákvað ég að hlusta á ráðgjafana og fara á fundi. Eftir að ég gerði það gekk þetta nú betur. Svo leið tíminn. Svo nú er ég búinn að vera edrú í fjögur ár. Ég tók bara einn dag í einu og allt í einu var liðið ár. Ég er núna búinn að koma mér ágætlega fyrir á Héðinsgötunni,“ segir Lalli.

Hann segir stóran hluta af því að halda sér edrú vera að mæta á AA-fundi. „Ég fer stíft á fundi. Á Héðinsgötu, Draumasetrinu, þar er fundur á mánudögum og þriðjudögum, húsfundur á miðvikudögum, á fimmtudögum og föstudögum eru morgunfundir. Það er ekki skyldumæting, meira til að vita hvað menn eru að gera, hvernig málum er háttað. Ólafur Haukur og Elín eru húsráðendur í Draumasetrinu. Um jólin núna gáfu þau öllum pakka og þau eru með okkur í prógrammi. Hann Ólafur Haukur hefur verið okkur innan handar og hefur verið að hjálpa mönnum – leiða þá í gegnum þetta. Ég hef það fínt hjá þeim,“ segir Lalli.

„Betra að hafa reglu en óregluna“

Hann segir að félagsskapurinn og regluverkið á Draumasetrinu hjálpi við halda honum réttum megin. „Það er betra að hafa reglu en óregluna. Það er hentugra að hafa fasta reglu á þessu. Þá veit maður hvað maður á að gera þennan dag, svo á maður frí á eftir. Það er nú þannig í Draumasetrinu að þeir láta aðra þrífa vissa hluta hússins, en ég hef ekki þurft þess þar sem ég er kominn á þennan aldur. Það er ekki hægt að hafa mig sem þjónustufulltrúa,“ segir Lalli og hlær en hann verður 67 ára á þessu ári, löggildur ellilífeyrisþegi.

Á milli þess að mæta á AA-fundi aðstoðar Lalli félaga sína í bílaviðgerðum og fer í göngutúra. Hann reynir líka að aðstoða unga menn við edrúmennsku. „Ég hef verið að lesa í Tólf spora-bókinni og stúdera AA-bókina. Þess á milli hef ég verið að leiðbeina mönnum. Það eru nokkrir ungir á Héðinsgötu sem hafa verið að spyrja mig hvernig maður hagi sér í þessum málum. Það hefur gefist vel og ég hef ekki verið iðjulaus. Sumir hafa náð sér út úr sukki og svínaríi. Þetta er lið sem hefur verið sprautufíklar og annað. Ég reyni að gefa eins mikið og hægt er af mér,“ segir Lalli.

Draumasetrið sem Lalli nefnir er áfangaheimili rekið af hjónunum Elínu Örnu Arnardóttur og Ólafi Hauki Ólafssyni. Í samtali við DV segir Ólafur Haukur óvíst með framtíð heimilisins því engir styrkir fást frá hinu opinbera og setrið rekið alfarið í sjálfboðavinnu. Undanfarin ár hefur fjöldi fíkla sagt opinberlega að heimilið hafi bjargað lífi þeirra. Markmið þess er draga úr þeirri neyð sem sumir fyrrverandi fíklar búa við, enda margir á götunni. „Ég myndi sjá eftir því. En ég held að þessu verði ekki lokað,“ segir Lalli.

Íhugar nám

„Það er betra að hafa reglu en óregluna“

Lalli segist oft hugsa um liðna tíð burt séð frá draumunum sem sækja á hann reglulega. „Mér finnst nú, ef ég segi eins og er, að þetta séu betri tímar í dag. Ég sakna sums – „góðu tímanna“ – en ekki alls. Sums. Mér hefur ekkert langað í vín eða svoleiðis. Maður fer að rifja upp staði sem maður hefur verið á áður. Það hefur verið jákvætt að vera á Draumasetrinu, að hugsa um það liðna og hvað maður hefur farið á mis við,“ segir Lalli.

Í því samhengi nefnir hann menntun. „Ég hef hugsað sem svo, kannski ætti ég að fara í skóla. Hvaða skóla á maður að fara í eða hvort maður eigi að taka heimanám? Jafnvel bréfaskóla. Þá myndi ég læra félagsfræði og reikning. Taka stúdentsprófið í leiðinni,“ segir Lalli og hlær.

Aldrei dæmdur í ljóðabókamálinu

Lalli varð landsþekktur eftir að heimildamynd Þorfinns Guðnasonar um hann kom út árið 2001. Hann segir það hafa verið blendna tilfinningu að vera svo þekktur á þessum tíma. „Það var um tíma sem fólk var að spyrja mig hvernig ég færi að þessu. Ég er enn að hitta fólk sem hefur séð myndina og spyr hvort það verði ekki framhald,“ segir Lalli.

Ein frægasta sagan af Lalla er þegar hann í einu af sínum innbrotum gleymdi sér um stund við lestur ljóðabókar eftir Stein Steinar. Þegar lögregla mætti á vettvang var hann uppi í rúmi í miðjum ljóðalestri. „Ég var aldrei dæmdur í þessu máli vegna þess að dómarinn spurði hvar þetta hefði verið og ég sagði: „Þetta var í Ráðherrabústaðnum.“ Hann sagði seinna að ég hefði verið dæmdur fyrir þetta hefði þetta verið eitthvert hús annað en Ráðherrabústaðurinn. Það átti ekki að vera hægt að komast óboðinn inn í Ráðherrabústaðinn og sitja þar og lesa bók eftir Stein Steinar,“ segir Lalli og hlær dátt.

Flestir sem hafa kynnst Lalla vita að þrátt fyrir allt þá hefur hann alltaf verið frekar jákvæður að upplagi. Hann segir þó að brennivínið hafi stundum gert hann þunglyndan. „Þegar ég var á þessu fylleríi þá fann ég að það komu lélegir tímar. Annaðhvort reyndi ég að drekka til að gleyma þessum verstu tímum eða þá að hætta að drekka. Það reyndist erfiðara. Ég var aldrei lengi edrú í einu. Það hefur tekið svolítinn tíma að byggja upp þetta góðæri núna. Það hefur gerst að maður hefur ekki fengið það sem maður vildi en þá er bara að vinna úr því. Þá er maður bara ánægður þegar vel gengur. Maður hefur fylgt því eftir. Ég hef alltaf haft það sem reglu, að hafa þetta á jákvæðu nótunum og ekki flækja þetta neitt mikið,“ segir Lalli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Í gær

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“