Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur telur að vatn borgarbúa sé öruggt til neyslu þrátt fyrir að óæskilegir gerlar hafi fundist við sýnatökur. Segir í tilkynningu frá Veitum að það hafi verið ljóst í dag að gerlafjöldi í neysluvatnssýnum sem starfsmaður Veitna tók í Heiðmörk nú í vikunni sé yfir mörkum.
Segir jafnframt að fátítt sé að óæskilegir gerlar finnist í neysluvatni úr Heiðmörk en í hlákutíð sé þó meiri hætta á að gerlar frá yfirborði berist í grunnvatn. Nú sé unnið eftir skráðu verklagi til að bregðast við hættunni. Strax og frávikin urðu ljós var sýnatakan endurtekin og lokað fyrir vatnstöku úr viðkomandi borholum á vatnstökusvæðunum.