fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Kári gefur Katrínu ekki háa einkunn: „Það kórónaði svo klaufaskapinn í þér…“

Fer yfir fyrstu vikurnar í embætti, lið fyrir lið

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 10. janúar 2018 09:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, skýtur föstum skotum að Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og gefur henni ekki beint háa einkunn eftir fyrstu vikurnar í embætti.

Kári gerir þetta upp í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Kári segist í grein sinni hafa reiknað með að Katrín yrði málsvari þeirra sem minnst mega sín í íslensku samfélagi. Þess vegna hafi hann glaðst þegar í ljós kom að hún yrði forsætisráðherra.

„Ég er líka viss um að þú vildir verða málsvari þeirra sem minnst mega sín. En nú er ég farinn að velta því fyrir mér hvort það sé komin ástæða fyrir mig til þess að spyrja hvers vegna, og kannski þú sért farin að velta því fyrir þér líka.“

„Greiði við menn eins og mig“

Kári bendir svo á að eitt það fyrsta sem Katrín sagði eftir að hún tók við embætti forsætisráðherra var að það ætti að fella niður virðisaukaskatt af bókum og tónlist.

„Þeir hefðu fagnað niðurfellingu á virðisaukaskatti á mjólk og fiski þannig að þeir hefðu efni á því að fæða börn sín á öðru en pitsum og hamborgurum.“

„Þeir sem minnst mega sín í íslensku samfélagi kaupa hvorki bækur né tónlist. Í þeirra augum lítur þetta sjálfsagt svipað út og þegar Dagur lét mála myndir eftir Erró á blokkir uppi í Efra-Breiðholti. Þetta er greiði við menn eins og mig. Þetta er greiði við mennta- og listaelítuna. Þetta er greiði við fólk sem er með annan smekk og aðrar þarfir en þeir sem minnst mega sín. Ég er persónulega feginn því að hlúð sé að bókmenntum og tónlist með því að fella niður virðisaukaskatt á afurðir þeirra og ég er hrifinn af Erró. En þetta hefur ekkert með þá að gera sem minnst mega sín í samfélaginu. Þeir hefðu fagnað niðurfellingu á virðisaukaskatti á mjólk og fiski þannig að þeir hefðu efni á því að fæða börn sín á öðru en pitsum og hamborgurum.“

Reyna að framfleyta sér út mánuðinn

Kári bendir svo á að Katrín hafi talað um umhverfismál á fundi í Kaupmannahöfn þar sem hún hafi haldið því fram að Íslendingar myndu ná utan um kolefnisvandann löngu á undan nágrönnum okkar.

„Ég er montinn af því háleita markmiði sem þú setur okkur. Kolefnisvandinn vegur hins vegar að möguleikum mannsins til þess að lifa á þessum hnetti í framtíð sem er þó nokkuð í burtu frá okkur. Þeir sem minnst mega sín í okkar samfélagi eru að berjast við að framfleyta sér út mánuðinn.“

Því næst bendir Kári á fjárlögin þar sem 800 milljónum var bætt við Háskóla Íslands en engin vísbending um að hlúa ætti betur að leik- og grunnskólum landsins. Bendir Kári á að um sex þúsund börn á Íslandi búi undir fátæktarmörkum. „…og það væri gleðilegt ef við hefðum það á tilfinningunni að það væri efst á forgangslista formanns Vinstri grænna að vinna að því að þau fái betri tækifæri í lífinu en bíða þeirra núna.“

Auðkýfingurinn borgar minni skatt

Kári ræðir svo um skattamálin.

„Mér hafa alltaf fundist skrýtnar röksemdirnar fyrir því að ég, auðkýfingurinn, borgi miklu minni skatt af tekjum sem ég hef af eignum mínum en konurnar sem þrífa skrifstofuna mína borga af tekjum sem þær afla í sveita síns andlits. Með fjárlögunum var fjármagnstekjuskattur hækkaður úr 20% upp í 22%. Það eru góðar fréttir í mín eyru að fjármagnstekjuskattur sé hækkaður en tvö prósent eru einhvers staðar milli þess að vera skammarlega og hlægilega lítið. Þegar ég sá þetta var það fyrsta sem mér datt í hug að þarna hefðir þú, Katrín, látið í minni pokann fyrir félögum þínum í samsteypustjórn og það er í eðli samsteypustjórnar af þeirri gerð sem ég hafði vonast eftir og við höfum í dag að stundum láti menn í minni pokann þegar þeir berjast fyrir góðum málum.“

„Mér hafa alltaf fundist skrýtnar röksemdirnar fyrir því að ég, auðkýfingurinn, borgi miklu minni skatt af tekjum sem ég hef af eignum mínum en konurnar sem þrífa skrifstofuna mína borga af tekjum sem þær afla í sveita síns andlits.“

Glatað jarðtengingunni

Kári segir að svo hafi nýársávarp Katrínar verið býsna gott – eitt í því hafi þó bent til þess að hún hefði glatað einhverjum hluta af eðlilegri jarðtengingu. Vísar Kári í orð Katrínar sem sagði:

„Þegar glímt er við ójöfnuð er mikilvægt að líta til þess hvar ójöfnuðurinn er mestur en á Íslandi er það í eignatekjum. Þess vegna er hækkun fjármagnstekjuskatts sem samþykkt var nú fyrir áramót leið til að gera skattbyrðina réttlátari og auka jöfnuð.“

Kári segir síðan:

Tvö prósentin eru langt innan skekkjumarka í áætlun tekna af fjármagnstekjuskatti og leggja því ekkert af mörkum til þess að gera byrðina réttlátari í áætlunum fyrir 2018. Ef þessi yfirlýsing hefði komið frá vitamálastjóra í stað forsætisráðherra hefði hún hljómað svona: Tilkynning frá vitamálstjóra, engin tilkynning frá vitamálastjóra í dag.

Það kórónaði svo klaufaskapinn í þér þegar þú settir á laggirnar í síðustu viku vinnuhóp til þess að stuðla að trausti í stjórnmálum. Það bendir til þess að þú hafir ekki bara glatað jarðtengingu heldur tengingu við Vetrarbrautina alla. Þjóðin kaus sér fyrir skömmu hóp sem hún vonast til þess að auki traust hennar á stjórnmálum. Sá hópur heitir Alþingi. Enginn annar hópur er þess umkominn að hafa áhrif á afstöðu þjóðarinnar til stjórnmálanna.

Kári segir að það hljóti að vera erfitt og flókið að vera forsætisráðherra – og enn erfiðara að vera forsætisráðherra og maður sjálfur á sama augnablikinu. Kári tekur svo fram í lok greinarinnar að hann sé einn af aðdáendum Katrínar. Hann sé ekki í nokkrum vafa um að hún vilji vera málsvari lítilmagnans og vilji hlúa að honum. „En á þessum fyrstu vikum þínum sem forsætisráðherra hefurðu hvorki verið né gert þetta.“

Grein Kára í heild sinni má lesa hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Í gær

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks
Fréttir
Í gær

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“
Fréttir
Í gær

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás