fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Fordæmir lögreglu fyrir að tala opinberlega um andlega heilsu sambýlismanns síns

„Við erum varnarlausir þegar lygin er notuð sem vopn“

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 23. júní 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Allt þetta mál er sorglegt frá upphafi til enda. Sú atburðarás sem þessi unga kona lýsir er lygi frá upphafi til enda. Þá er framganga lögreglu í málinu til skammar. Ég skil ekki hvernig þeir voga sér að tala opinberlega um heilsu fólks,“ segir listamaðurinn Jón Þorgeir Ragnarsson í samtali við DV. Hann er sambýlismaður Halls Heiðars Hallssonar sem í fyrradag var sakaður um að hafa veist að ungri konu, Töru Líf Styrmisdóttur, og fjölskyldu hennar þegar þau voru að skoða kanínur í Elliðaárdal. Ríkisútvarpið greindi frá málinu á vef sínum en í fréttinni kom fram að lögreglan hefði nokkrum sinnum haft afskipti af Halli vegna sams konar mála. Þá var haft eftir Gunnari Hilmarssyni, aðalvarðstjóra á Lögreglustöðinni í Kópavogi, að Hallur, sem var ekki nefndur á nafn í fréttinni, gengi ekki heill til skógar. Þá kom fram að Hallur yrði kallaður til skýrslutöku vegna meintra eignaspjalla og að lögð yrði fram kæra.

Hótanir og eignaspjöll

Eins og áður segir var Tara Líf stödd í Elliðaárdal ásamt móður sinni, dóttur og ungri systur að virða fyrir sér kanínurnar. Tara Sif tók eitt dýrið í fangið og við því brást Hallur illa. „Hann öskrar á mig að láta sig fá kanínuna og hendir frá sér vespunni og setur hnefann upp að hausnum á mér og fer að ógna mér, öskrar að ég sé bara helvítis hóra og hálf reif hana úr fanginu á mér, þarna stend ég með báðar stelpurnar við lappirnar á mér,“ segir Tara Sif á Facebook.

Þá heldur hún því fram að Hallur hafi kallað mæðgurnar öllum illum nöfnum, tekið upp myndavél og tekið af þeim myndir. Þá hafi hann haft í alvarlegum hótunum og gerst sekur um eignaspjöll: „Hann fer á vespunni og kemur svo aftur á fleygiferð og hrifsar í handlegginn á mömmu og grýtir símanum hennar í mölina og mölbrýtur hann. Það munaði einu skrefi að hann færi beint á litlu systur mína þar sem hann brunaði á milli hennar og mömmu,“ skrifar Tara. Að hennar sögn hafi Hallur reynt að keyra hana niður á vespunni á meðan hún hafi verið hlaupandi með barnið sitt í fanginu. Lögreglan kom skömmu síðar á staðinn og tók skýrslu en þess ber að geta að fjölmargir einstaklingar hafa stigið fram og kvaðst hafa átt í skærum við Hall í tengslum við kanínurnar.

Fyrirtæki fæða dýrin

Jón Þorgeir vísar þessari meintu árás sambýlismanns síns til föðurhúsanna. Hann kannast hins vegar við rifrildi og skærur. „Hallur er óhræddur og lætur reglulega í sér heyra. Ég hef heyrt fólk kvarta yfir því að hann sé að öskra á það en það er ekki eins og hann geti staðið í dyragættinni og hvíslað til fólks sem er lengst í burtu. Við höfum reynt að afmarka svæðið en margir virða það að vettugi. Þar er mikið af holum sem fólk getur slasað sig á, sérstaklega börn,“ segir Jón Þorgeir.

Auðheyrt er að honum og Halli sambýlismanni hans þykir afar vænt um kanínurnar. „Þegar við fluttum hingað inn þá voru allir að spyrja hvort við ætluðum ekki að fá okkur gæludýr, hund eða kött. Ég sagði að við vildum helst að dýrin væru frjáls og síðan birtust kanínurnar hér,“ segir Jón Þorgeir.

Síðan þá hafa sambýlismennirnir haldið verndarhendi yfir kanínunum en það hafa þeir ekki gert einir. „Yfirgnæfandi meirihluta fólks þykir vænt um kanínurnar enda er eitthvað við þessi dýr sem erfitt er að útskýra. Börn elska þær og hingað er stöðugur straumur af ömmum og öfum með ungviðið. Þá eru fjölmörg fyrirtæki sem leggja hönd á plóg varðandi fæði handa þeim,“ segir Jón Þorgeir.

Veiddar og barðar til ólífis með kylfum

Velvilji í garð dýranna sé þó ekki algildur því að margir vilja kanínurnar burt og þá hafi þær orðið fyrir stöðum árásum illvirkja. Sem dæmi má nefna að Reykjavíkurborg skoðaði [alvarlega að fækka dýrunum árið 2013].(http://www.visir.is/g/2013130819562/-ut-i-hott-ad-utryma-kaninum). „Ég hef aldrei skilið þetta tal. Mávurinn og kettirnir halda kanínum í skefjum. Að auki verða þær reglulega fyrir árásum fólks, stundum bara af hreinni mannvonsku. Síðan höfum við oft orðið vitni að því að fólk af erlendu bergi brotið sé að veiða þær, þá annaðhvort til matar eða til að komast yfir feldinn af þeim. Ef kanína hér eignast tíu unga þá er það heppni ef einn kemst á legg,“ segir Jón Þorgeir. Að hans sögn gerðu unglingsstrákar sér það að leik að berja kanínurnar til ólífis með hafnaboltakylfum fyrir nokkrum árum og það var í raun kornið sem fyllti mælinn.

„Við tókum kanínurnar stundum í fangið og létum vel að þeim. Við áttuðum okkur þá á því að við vorum að gera þær of gæfar og þannig urðu þær varnarlausar gagnvart fólki. Það gerist reglulega að fólk tekur kanínurnar upp og þeim líður ekki vel með það. Þær reyna að koma sér í burtu og stökkva úr fangi fólks. Fallið er þá oft mjög hátt og þær slasast stundum þegar þær lenda í jörðinni,“ segir Jón Þorgeir og bendir á að á heimili þeirra séu nú sjö slasaðar kanínur sem þeir séu að hlúa að.

Það sé skýringin á því að Hallur hafi hrifsað kanínuna af Töru Sif. „Hann tók af henni kanínuna og hún brást illa við því. Hún byrjaði að hóta honum lífláti og handrukkun. Ég hef ekki heyrt aðrar eins svívirðingar og það fyrir framan börn,“ segir Jón Þorgeir og kveðst ekki hafa staðið á sama. „Ég vil ekki eiga í deilum við neinn. Hallur lætur hins vegar í sér heyra, en það er af og frá að hann eigi í stríði við allt og alla,“ segir Jón Þorgeir. Hann segir málið vera storm í vatnsglasi en segist sannfærður um að eitthvað gott komi út úr því. „Við erum varnarlausir þegar lygin er notuð sem vopn. Sem betur fer var sjónarvottur að uppákomunni, annars hefði Hallur verið handtekinn á staðnum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir undirskriftalistann gegn Bjarna plebbalegan og óvirðingu við lýðræðið

Segir undirskriftalistann gegn Bjarna plebbalegan og óvirðingu við lýðræðið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í opinni dagskrá á nýjan leik

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í opinni dagskrá á nýjan leik