fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Var valdaránstilraunin í Tyrklandi blekking?

Klerkurinn Gulen segir Erdogan forseta mögulega ábyrgan – Hreinsanir standa enn

Ritstjórn DV
Föstudaginn 26. maí 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mögulega var valdaránstilraunin sem gerð var gegn stjórnvöldum í Tyrklandi í fyrra sviðsett. Þessu heldur klerkurinn Fethullah Gulen fram í viðtölum við erlenda fjölmiðla. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti hefur lýst því ítrekað yfir að Gulen sé arkitektinn að baki valdaránstilrauninni, að Gulenistar í Hizmet-hreyfingunni séu ábyrgir. Hefur Erdogan farið fram á að Gulen, sem búsettur er í Bandaríkjunum, verði framseldur til Tyrklands til að svara fyrir meinta glæpi sína, en yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ekki orðið við þeirri beiðni. Gulen hefur aftur á móti svarið af sér aðild að valdaránstilrauninni og gerði það raunar strax meðan á henni stóð. „Það er mögulegt að valdaránstilraunin hafi verið sviðsett, í því skyni að auka enn á ásakanir [gegn Gulen og fylgismönnum hans].“

Færir Tyrkland frá hinu veraldlega

Valdaránstilraunin var gerð í Tyrklandi 15. júlí í fyrra af hópi innan tyrkneska hersins, sem í heild taldi líklega um tíu þúsund manns þegar allt var talið. Markmiðið var að steypa Erdogan forseta og ríkisstjórn hans af stóli með það fyrir augum „að koma að nýju á reglu samkvæmt stjórnarskránni, gæta að mannréttindum og frelsi borgaranna, halda uppi lögum og almennu öryggi sem búið var að skaða,“ eins og sagði í yfirlýsingu þeirra sem að henni stóðu. Síðustu misseri fyrir valdaránstilraunina, og sannarlega eftir hana, hafði Erdogan setið undir mikill gagnrýni heima og að heiman sökum æ einræðislegri hátta og sífellt meiri trúarlegra áhrifa í stjórnarfari, sem eru í hróplegu ósamræmi við nútíma Tyrkland Kemals Ataturks, föður tyrkneska lýðveldisins.

Gulen og stuðningsmenn hans í Hizmet-hreyfingunni studdu AKP, Réttlætis- og þróunarflokk Erdogans, til valda og með aðstoð Gulenista tókst Erdogan að kveða niður andstöðu við ríkisstjórn sína innan hersins og réttarkerfisins, andstöðu gegn því hvernig forsetinn hafði fært stjórn sína í sívaxandi mæli í geistlega átt. Tyrkneski herinn og tyrkneskir dómstólar höfðu hins hins vegar lagt áherslu á veraldlega tengingu og höfnuðu áhrifum íslam á störf sín. Árið 2010 hóf stjórn Erdogans miklar hreinsanir með handtöku ríflega 300 yfirmanna í hernum sem ásakaðir voru um að hafa undirbúið valdarán, undir yfirskriftinni „Sleggjan“. Samhliða voru stjórnarandstæðingar og blaðamenn handteknir í hrönnum, réttað yfir þeim og þeir dæmdir fyrir aðild að andstöðu gegn stjórnvöldum. Þær hreinsanir voru mjög umdeildar og gagnrýndar bæði innanlands sem utan og sagðar byggja á fölsunum og blekkingum. Þannig sannaðist að skjöl þar sem áætlunum um valdaránið, sem sögð voru frá árinu 2003, voru skrifuð með ritvinnsluforriti sem ekki kom út fyrr en árið 2007. Erdogan hvikaði hins vegar hvergi.

Fetullah Gulen neitar alfarið að hafa komið nálægt hinni misheppnuðu valdaránstilraun í Tyrklandi í fyrrasumar.
Neitar sök Fetullah Gulen neitar alfarið að hafa komið nálægt hinni misheppnuðu valdaránstilraun í Tyrklandi í fyrrasumar.

Vík milli vina

Gulen og Erdogan lentu síðan upp á kant hvor við annan árið 2013 og opinberaðist hversu mikil vík var orðin milli vina þegar hafin var rannsókn á stórfelldri spillingu lykilfólks innan ríkisstjórnarinnar, þar á meðal á Erdogan sjálfum. Sú rannsókn leiddi til handtöku fjölda fólks en einnig afsagnar ráðherra. Erdogan brást við með því að hefja hreinsanir innan lögreglunnar og herti tök sín verulega, auk þess sem hann skellti skuldinni á Gulen og sagði hann hafa skipulagt aðför að sér, sem væri hluti af alþjóðlegu samsæri. Frá þeim tíma hafa tyrknesk stjórnvöld flokkað Gulen og fylgismenn hans sem „hryðjuverkamenn“ og sakað þá um landráð.

Tugþúsundir fangelsuð

Valdaránstilraunin í júlí í fyrra er angi af þessum hörðu deilum, hvort sem hún var að undirlagi Gulens eins og Erdogan vill halda fram, var sviðsett eins og Gulen heldur fram eða var raunveruleg án tenginga við hvorn þeirra fyrir sig. Engu að síður hefur Erdogan notað valdaránstilraunina til að herða öll tök sín á tyrknesku þjóðfélagi. Þannig voru neyðarlög innleidd í landinu við valdaránstilraunina og hafa stjórnvöld nýtt sér þau til að handtaka hátt í fimmtíu þúsund manns. Í þessari viku krafðist saksóknari í Ankara lífstíðarfangelsisdóm yfir tæplega 3.000 manns sem gefið er að sök að hafa tekið þátt í valdaránstilrauninni í fyrra. Ávirðingar um að viðkomandi séu stuðningsmenn Gulens eru opinberu ástæðurnar og eru þeir sem sakaðir eru um slíkt sagðir vinna gegn ríkinu. Yfir hundrað þúsund manns hafa verið reknir úr opinberum störfum, lögreglumenn, dómarar, saksóknarar og aðrir opinberir starfsmenn.

Amnesty segir mannréttindi brotin

Í nýlegri skýrslu Amnesty International um hreinsanir Erdogans í Tyrklandi kemur fram að stjórnvöld hafi ekki getað sýnt fram á að þeir sem hafi ýmist verið handteknir eða reknir séu með neinum hætti tengdir Gulen eða fylgismenn hans. Sú staðreynd að þeir sem hafa verið reknir eru fulltrúar verkalýðsfélaga, stjórnmálamenn mannréttindafrömuðir sem þekktir eru að gagnrýni á stjórnvöld eykur enn á áhyggjur samtakanna um að uppsagnirnar og fangelsanirnar séu af pólitískum toga, séu handahófskenndar og eigi sér engin rök. Samtökin telja að með aðgerðum Erdogans forseta sé verið að brjóta mannréttindi fjölda fólks og skora á stjórnvöld að snúa tafarlaust af þeirri vegferð sem þau hafa verið á.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“

Alræmdur glæpamaður laus undan bagga fortíðar í augum dómara -„Ég skal berja og lemja þig alveg eins og harðfisk“
Fréttir
Í gær

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla
Fréttir
Í gær

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks
Fréttir
Í gær

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“