„Ítalskur ferðamaður á þrítugsaldri, sem fannst meðvitundarlaus á Nesjavallavegi eftir miðjan dag í gær, hefur verið úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í Reykjavík. Maðurinn virðist hafa fallið af reiðhjóli sínu á leið sinni um Nesjavallaveg vestan Dyrafjalla og hlotið við það alvarlega höfuðáverka.“
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni sem óskar eftir aðstoð almennings. Í skeyti lögreglu segir jafnframt:
Lögregla óskar þess að þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir mannsins um Nesjavallaveg í gær hafi samband í síma 444 2000 eða í tölvupósti á netfanginu sudurland@logreglan.is