„Þjónustulundin er eins og á hágæða veitingahúsi. Í hvert skipti sem ég kem í mat dekrar starfsfólkið ekki bara við íbúanna heldur einnig við mig,“ skrifar Eiríkur Ragnarsson í pistli sem birtist á vef Kjarnans. Vekur hann þar athygli fólks á þeim möguleika að nýta sér hádegimatinn sem boðið er upp á hjá elliheimilum og fá þannig að saðsama máltíð á ódýru verði.
Hann segir frænku sína, sem býr á elliheimilinu í Lönguhlíð reglulega bjóða til sín gestum í hádegisverð. Maturinn sé fyrsta flokks: súpa í forrétt, heitur heimilismatur í aðalrétt og kaffi á eftir. Þá er félagsskapur eldra fólksins ekki síðri og ekki spillir fyrir verðlagið sem er mun lægra en á helstu veitingastöðum borgarinnar:
„Tveggja – og stundum þriggja – rétta máltíð kostar aðeins 1.200 krónur fyrr gesti. Ef við berum þetta saman við aðra valmöguleika þá sjáum við hversu ótrúlega góður díll þetta er. Til dæmis, síðast þegar ég fór fékk ég grænmetissúpu í forrétt og Ýsu í orlý með kartöflum og grænmeti í aðalrétt. Ekki ósvipuð máltíð og býðst á hinum ýmsu veitingahúsum borgarinnar,“
ritar hann og bætir við á öðrum stað að það fari ekki á milli mála að „besti díll bæjarins“ sé á elliheimilinu. Hann kveðst þó aldrei hafa rekist á aðra en íbúana í hádegismat á elliheimilinu og telur ástæðurnar vera tímaskort fólks, leti og fordóma og skort á upplýsingum um þennan valkost.
„Fólk er til í að fara í mat, en veit ekki endilega að það er í boði og/eða veit ekki hvað það getur sparað sér mikið með því að fara í hádegismat á elliheimilinu.“