fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Vændishús í Fiskakvísl: „Óraunverulegt núna að þetta hafi virkilega gerst“

Alexander vann hjá Barnavernd Reykjavíkur – Starfsemin fór fram í íbúð í Ártúnsholti

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 12. desember 2017 15:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hann var villingur úti á Nesi en var samt vinsæll, ekki síst hjá stelpunum. Eftir grunnskólann hvarf hann hins vegar af yfirborði jarðar. Ég vissi bara að hann hefði farið út af sporinu,“ segir maður sem ólst upp með Alexander Manrique Elíassyni á Seltjarnarnesi. Alexander er nýsloppinn úr gæsluvarðhaldi þar sem hann hefur setið í heila viku ásamt eiginkonu sinni sem er frá Perú. Þau eru grunuð um aðild að umfangsmiklu vændismáli sem lögreglan hefur nú til rannsóknar. Leigði Alexander íbúð í Ártúnsholti þar sem starfsemin er talin hafa farið fram.

Ekki grunur um mansal

Grunur leikur á að Alexander og eiginkona hans hafi gert þrjár perúskar konur út í vændi. Í upphafi rannsóknarinnar beindist grunur lögreglu að því að hjónin hefðu gerst sek um mansal. Sá grunur var hins vegar ekki á rökum reistur ef marka má yfirlýsingar lögreglu. Vændiskonurnar þrjár virðast hafa komið til landsins af fúsum og frjálsum vilja og stundað hér ábatasama útgerð. Vegabréf vændiskvennanna voru í þeirra eigin vörslu og héldu þær til síns heima fljótlega í kjölfar aðgerða lögreglu.

Við húsleit lögreglu var lagt hald á á tölvur, síma og um þrjár milljónir króna í reiðufé. Þá virðist hafa verið haldin skrá yfir fjölmarga viðskiptavini og má gera ráð fyrir því að þessir aðilar verði boðaðir í yfirheyrslu hjá lögreglu innan tíðar.

DV hefur undir höndum samskipti vændiskonu sem var á hrakhólum og leitaði að vernd eftir að parið var handtekið. Í samskiptunum segir vændiskonan að líf hennar hafi verið þyrnum stráð og hana langaði út úr þessari myrku veröld.

Hét áður Jón Alexander

Ferill Alexanders hefur vakið talsverða athygli í fjölmiðlum, ekki síst fyrir þá staðreynd að hann starfaði hjá Barnavernd Reykjavíkur skömmu áður en vændismálið kom upp. Alexander hét áður Jón Alexander Elíasson og ólst upp á Seltjarnarnesi. Að lokinni grunnskólagöngu leiddist hann út á ranga braut. Hann hlaut fangelsisdóm á táningsaldri og var honum gefið að sök að hafa reynt að aka á mann. Að lokinni afplánun venti hann kvæði sínu í kross, að minnsta kosti á yfirborðinu.

DV hefur ekki ítarlegar upplýsingar um hvað Alexander tók sér fyrir hendur að lokinni afplánun dómsins. Þó er ljóst að hann rak um tíma bar á Spáni sem og köfunarskóla, en hann hefur kennsluréttindi sem kafari. Hann starfaði um tíma fyrir köfunarþjónustuna Kafarinn.is hér á landi og árið 2004 hóf hann störf hjá Krýsuvíkursamtökunum. Þá starfaði hann einnig sem áfengisráðgjafi. Sú reynsla hjálpaði eflaust til þegar hann var ráðinn til starfa hjá Barnavernd Reykjavíkur.

Könnuðu bakgrunninn

Samkvæmt heimildum DV var hann vel liðinn á vinnustaðnum og er starfsfólk í uppnámi yfir því að hann sé grunaður um aðkomu að vændisstarfsemi. Í umfjöllun Ríkisútvarpsins um málið fullyrti Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, að Alexander hafi verið farsæll í starfi.

Í skriflegu svari til DV segist Halldóra ekki kannast við að meinbugir hafi verið á vinnu Alexanders hjá Barnavernd Reykjavíkur. Þá hafi starfslok hans ekki á neinn hátt tengst meintri vítaverðri háttsemi. Alexander, eins og aðrir starfsmenn stofnunarinnar, undirritaði heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá þegar hann hóf þar störf. Samkvæmt heimildinni getur Barnavernd óskað eftir upplýsingum um kynferðisbrot án tímamarka. Hvað aðra refsidóma áhrærir, til dæmis ofbeldisbrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, er tímaramminn fimm ár. Halldóra staðfestir að ferill Alexanders hafi verið kannaður að því marki sem heimildir veita auk þess sem starfsferill hans var skoðaður og meðmæla aflað.

„Óraunverulegt núna að þetta hafi virkilega gerst“

Samkvæmt heimildum DV fór bróðurpartur meintrar vændisstarfsemi fram í húsi við Fiskakvísl í Ártúnsholti. Að sögn nágranna í nærliggjandi húsi fluttu þrjár suðuramerískar konur inn í íbúð sem Alexander tók á leigu. Nánast umsvifalaust hófust tíðar mannaferðir að húsinu á öllum tímum sólarhrings. „Þetta voru menn á öllum aldri, sumir vel klæddir en aðrir ekki. Þetta spannaði í raun allan þjóðfélagsskalann,“ segir nágranni í samtali við DV.

Að hans sögn fór ekki framhjá neinum í nágrenninu, að einhverjum tíma liðnum, hvers konar starfsemi fór fram í húsinu. „Þetta var í gangi í um tvo mánuði. Fólk er auðvitað smá tíma að gera sér grein fyrir einhverju af þessu tagi, enda býst maður ekki við svona starfsemi í rólegri íbúðagötu. Það er eiginlega óraunverulegt núna að þetta hafi virkilega gerst,“ segir nágranninn.

Hann segist hafa mætt stúlkunum reglulega í götunni. „Þær voru mjög vinalegar en töluðu ekki orð í íslensku eða ensku. Það þýddi lítið að bjóða þeim góðan daginn á íslensku,“ segir viðmælandinn.

Þá segir hann að leigubílaferðir hafi verið tíðar í götunni. „Það var svolítið fyndið að menn pöntuðu greinilega leigubílana að öðrum húsum í götunni og stóðu þar álútir, sennilega til að gera þetta ekki of augljóst. Ég tek sjálfur af og til leigubíla og á þessu tímabili spurði ég út í hvað væri í gangi í þessu tiltekna húsi. Það var alveg á hreinu að bílstjórarnir vissu það,“ segir maðurinn að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ragnheiður ánægð að hafa hætt viðskiptum við fyrirtækið

Ragnheiður ánægð að hafa hætt viðskiptum við fyrirtækið
Fréttir
Í gær

Áfengisneysla á uppleið á Íslandi en niðurleið í Evrópu – Íslendingar fara oft á fyllerí

Áfengisneysla á uppleið á Íslandi en niðurleið í Evrópu – Íslendingar fara oft á fyllerí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Með varanlegan taugaskaða eftir að hann var skorinn upp á Landspítala við ófullnægjandi lýsingu

Með varanlegan taugaskaða eftir að hann var skorinn upp á Landspítala við ófullnægjandi lýsingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Starfsfólk hetjur sem eigi hrós skilið – „Ég á varla til orð til að lýsa aðdáun minni“

Starfsfólk hetjur sem eigi hrós skilið – „Ég á varla til orð til að lýsa aðdáun minni“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn lagði Moggabloggarann Pál í héraði – Átta ummæli dæmd dauð og ómerk og dagsektir yfirvofandi

Aðalsteinn lagði Moggabloggarann Pál í héraði – Átta ummæli dæmd dauð og ómerk og dagsektir yfirvofandi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ökumaður á Akureyri gáði ekki að sér – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Ökumaður á Akureyri gáði ekki að sér – Afleiðingarnar voru skelfilegar