fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

„Herra Ísland“ eykur ítök sín í Lýsingu

Burlington Loan Management kaupir 31,8% hlut Arion banka í Klakka – Orðinn langstærsti hluthafinn

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. janúar 2016 11:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vogunarsjóðurinn Burlington Loan Management er orðinn langsamlega stærsti einstaki hluthafi Lýsingar eftir að hafa gengið frá kaupum á 31,8% hlut Arion banka í Klakka, sem er móðurfélag fjármögnunarfyrirtækisins, undir lok síðasta árs. Voru kaupin gerð í nafni BLM Fjárfestingar ehf., íslensks dótturfélags Burlington Loan Management, en fyrir átti vogunarsjóðurinn 13,2% hlut í Klakka (áður Exista). Á sjóðurinn því núna samtals 45% eignarhlut í Klakka.

Magnús Scheving Thorsteinsson, eini stjórnarmaður BLM Fjárfestinga, staðfestir í samtali við DV að félagið hafi keypt hlutinn af Arion banka en sagðist að öðru leyti ekkert geta tjáð sig um málið þegar hann var spurður um kaupverðið. Er Magnús Scheving jafnframt forstjóri Klakka og stjórnarformaður Lýsingar. Fjármálaeftirlitið hefur metið Burlington Loan Management, auk tengdra aðila, hæft til að fara með allt að 50% virkan eignarhlut með óbeinni hlutdeild í Lýsingu.

Arion banki, sem er að 13% hluta í eigu ríkisins, vildi ekkert tjá sig um söluverðið og sagði það vera „trúnaðarmál.“ Í skriflegu svari frá bankanum kemur fram að hluturinn í Klakka hafi verið auglýstur til sölu á vef bankans um „árabil án þess að honum hafi verið sýndur áhugi. Var svo komið að eignir Klakka höfðu að stærstum hluta verið seldar og hagsmunir bankans hvað félagið varðar orðnir hlutfallslega litlir. Því leitaði Arion banka í fyrra til stærstu hluthafa Klakka um að kaupa hlut bankans í félaginu, enda eru hagsmunir þeirra mun ríkari hvað félagið og eignir þess varðar. Sú vinna innan Klakka sem eftir stendur snýr fyrst og fremst að hagsmum erlendra eigenda.“

Auk þess að vera stærsti hluthafi Lýsingar er Burlington Loan Management eini lánveitandi félagsins eftir að sjóðurinn keypti 26 milljarða skuldir fjármögnunarfyrirtækisins af Deutsche Bank undir árslok 2013. Hefur sjóðurinn því tögl og hagldir innan Lýsingar. Samkvæmt síðasta birta ársreikningi Lýsingar nam skuldin gagnvart vogunarsjóðnum 13,8 milljörðum í árslok 2014. Eigið fé Lýsingar var tæplega tíu milljarðar í lok árs 2014 og nam hagnaður félagsins 269 milljónum króna eftir skatta.

Kröfuhafi Íslands

Eigandi Burlington Loan Management er bandaríski vogunarsjóðurinn Davidson Kempner Capital Management en sá sem stýrir starfsemi sjóðsins hér á landi er sem kunnugt er Jeremy Clement Lowe – einnig þekktur sem „Herra Ísland“ eða J. Lo. Sjóðir á vegum Davidson Kempner voru umsvifamiklir í kaupum á kröfum á föllnu bankanna og var Burlington Loan Management meðal annars stærsti einstaki kröfuhafi Glitnis. Í krafti þeirrar stöðu var Jeremy Lowe á meðal þeirra kröfuhafa sem sóttu upplýsingafundi í London og New York með helstu ráðgjöfum stjórnvalda á vormánuðum síðasta árs þar sem þeim voru kynnt áform stjórnvalda um að ljúka skuldaskilum gömlu bankanna með annaðhvort 39% stöðugleikaskatti eða á grundvelli stöðugleikaskilyrða.

Seðlabankinn eignast 30% hlut í Klakka

Á meðal þeirra eigna sem kröfuhafar gömlu bankanna framselja til íslenskra stjórnvalda er eignarhlutur slitabús Kaupþings og dótturfélaga Glitnis í Klakka. Miðað við hluthafaskrá Klakka í árslok 2014 þá er um að ræða nærri 30% hlut sem verður afhentur félagi í eigu Seðlabanka Íslands.

Tveir stærstu hluthafar Lýsingar verða því annars vegar Burlington Loan Management, umsvifamesti kröfuhafi Íslands, og hins vegar Seðlabankinn.

Hlutur Kaupþings í Klakka nemur í dag 17,6%, sem gerir slitabúið að næststærsta hluthafa félagsins, og þá eiga Holt Funding og Haf Funding, írsk skúffufélög í eigu Glitnis, samtals ríflega 11% hlut í Klakka.

Burlington Loan Management er jafnframt í hópi stærstu almennu kröfuhafa gamla Landsbankans. Þá hafa sjóðir á vegum Davidson Kempner einnig keypt hluti í Bakkavör Group á síðustu árum auk þess sem þeir eru taldir vera á meðal stærstu eigenda ALMC, áður Straums-Burðaráss fjárfestingabanka, í gegnum eignarhald sitt á hlutdeildarskírteinum í nafni Deutsche Bank AG í Amsterdam. Á meðal stjórnarmanna í Klakka er Matthew Hinds, fjármálaráðgjafi Talbot Hughes & McKillop, sem hefur unnið náið með helstu kröfuhöfum Glitnis undanfarin ár, meðal annars Jeremy Lowe.

Magnús Scheving Thorsteinsson er eini stjórnarmaður félagsins. Hann er jafnframt forstjóri Klakka og stjórnarformaður Lýsingar.
BLM Fjárfestingar Magnús Scheving Thorsteinsson er eini stjórnarmaður félagsins. Hann er jafnframt forstjóri Klakka og stjórnarformaður Lýsingar.

30 milljarðar í reiðufé

Heildareignir Klakka námu 47 milljörðum í árslok 2014 og nam hagnaður félagsins sex milljörðum. Tilgangur Klakka er ekki að skila hagnaði af reglulegum rekstri heldur að umbreyta eignum í laust fé og greiða til eigenda og kröfuhafa í samræmi við ákvæði nauðasamnings frá árinu 2010. Frá þeim tíma hafa greiðslur til þeirra numið samtals 42,6 milljörðum króna. Þannig losaði Klakki að fullu um eignarhlut sinn í VÍS á árinu 2014 þegar félagið seldi samtals 31% hlut í tryggingafélaginu. Eftir þá sölu hefur Lýsing verið langsamlega stærsta eign Klakka.

Reiðufé Klakka var 30 milljarðar í ársbyrjun 2015. Þeir fjármunir eru aftur á móti að stórum hluta veðsettir Burlington Loan Management (8 milljarðar) til tryggingar á skuldum samstæðunnar gagnvart sjóðnum og bundnar bankainnstæður sem ekki hefur mátt greiða út sem arð til erlendra hluthafa vegna fjármagnshafta (13,5 milljarðar). Þarna er því um að ræða eignir sem Arion banki á ekki tilkall til þrátt fyrir að hafa verið hluthafi í Klakka. Þá ber einnig að líta til þess að samkvæmt ákvæðum nauðasamnings Klakka þá fara 75% af öllum hagnaði Lýsingar aðeins til tiltekinna erlendra samningskröfuhafa félagsins. Samkvæmt heimildum DV munar þar mestu um Burlington Loan Management en aðrir hluthafar Klakka skipta hlutfallslega jafnt á milli sín 25% af afkomu Lýsingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala