fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Sonur Tom Jones býr á götunni en á meðan mokar pabbinn inn milljónum

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 16. janúar 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Velski söngvarinn Tom Jones á eignir sem metnar eru á 22 milljarða króna. Hann seldi nýlega glæsihús sitt í Los Angeles fyrir 900 milljónir. En á sama tíma er sonur hans heimilislaus.

Jon Jones, sem heitir réttu nafni Jonathan Berkery, er búsettur í New Jersey þar sem hann sefur á gólfi í athvarfi fyrir heimilislausa. Jon er 29 ára og hefur verið heimilislaus í mörg ár. Hann hefur aldrei hitt föður sinn þrátt fyrir að mörg ár séu liðin síðan faðernið var viðurkennt.

Þegar Tom var 47 ára átti hann í stuttu ástarsambandi með ungri fyrirsætu að nafni Katherine Berkery. Katherine var aðeins 24 ára á þessum tíma, í október 1987, en í júní árið 1988 kom Jon í heiminn. Tom þvertók fyrir það til að byrja með að vera faðir hans, þrátt fyrir að DNA-próf hefði leitt annað í ljós. Það var ekki fyrr en árið 2008 að Tom viðurkenndi að vera faðirinn.

Líf Jon hefur ekki verið neinn dans á rósum. Hann ólst upp föðurlaus og hefur átt erfitt með að sætta sig við að faðir hans vilji ekkert með hann hafa. Í viðtali við Mail Online fyrir skemmstu sagðist hann þó ekki vera búinn að gefa upp alla von.

„Mig langar að tala við hann um venjulega hluti, eins og: „Hvernig hefur líf þitt verið?“ Svona hefur mitt líf verið. Hann er að eldast, gæti verið veikur en mig langar að hitta hann áður en það verður of seint.“

Jones var gert að greiða meðlag með Jon á sínum tíma, 1,700 pund á mánuði, þar til hann varð átján ára. Tom gerði það en hefur aldrei viljað hitta son sinn eða hafa einhver afskipti af honum. Þetta afskiptaleysi og sú staðreynd að hann ólst upp án föðurímyndar hafði skaðleg áhrif á hann, segir Jon.

Hann fór ungur að neyta áfengis og fíkniefna og átti erfitt með að haldast í vinnu. Á undanförnum árum hefur hann stundum ekki haft þak yfir höfðiðið, eins og raunin er í dag. Í umfjöllun breskra fjölmiðla segir Jon að hann vilji einfaldlega kynnast föður sínum og það áður en það verður of seint. Tom Jones, sem er einn vinsælasti tónlistarmaður síðustu áratuga, er fæddur árið 1940 og er því á 78. aldursári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi