fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Ris og fall Bills Cosby

Sakaður um kynferðisbrot gegn fjölda kvenna – Hátt fall gamanleikarans

Kolbrún Bergþórsdóttir
Föstudaginn 23. júní 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kviðdómur komst ekki að niðurstöðu í réttarhöldum yfir leikaranum Bill Cosby sem ákærður var fyrir að hafa beitt konu kynferðisofbeldi fyrir þrettán árum. Talið er líklegt að málið verði tekið upp að nýju. Við réttarhöldin sat hinn 79 ára gamli Cosby, sem er lögblindur, úti í horni og hreyfði sig varla nema þegar hann hristi höfuðið til að sýna tilfinningar sínar.

Maðurinn sem hefur verið margverðlaunaður og heiðraður og var eitt sinn hæst launaði sjónvarpsleikari Bandaríkjanna hefur misst æruna. Það er ekki einungis þetta eina mál sem fór fyrir dóm sem hefur orðið honum að falli því rúmlega fimmtíu konur hafa ásakað hann um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi. Elstu ofbeldisverkin áttu að hafa gerst á miðjum sjöunda áratug síðustu aldar og þau yngstu er frá árinu 2008. Hann er meðal annars sakaður um nauðgun og að hafa byrlað konum ólyfjan. Þar sem þessi mál eru fyrnd munu þau ekki koma fyrir dóm. Cosby neitar sök en ljóst er að ímynd hans er stórlöskuð.

Ímyndin og sannleikurinn

Cosby fæddist árið 1937, einn fjögurra bræðra. Faðir hans var víðs fjarri öll stríðsárin og sinnti hermennsku. Cosby hefur lýst sér sem bekkjartrúðnum sem hafði meiri áhuga á að bregða á leik og grínast en að sinna náminu. Hann var mikill íþróttamaður og hafði yndi af leiklist og lék í skólaleikritum. Fjárhagur fjölskyldunnar var ekki upp á það allra besta og hann vann því með skóla, meðal annars við skóburstun og raðaði vörum í hillu í stórmarkaði. Þegar hann vann sem barþjónn í Fíladelfíu áttaði hann sig á hæfileikum sínum til að koma fólki til að hlæja. Hann ákvað að stíga á svið.
Hann varð frábær uppistandari sem sagði iðulega fyndnar sögur sem tengdust æsku hans. Fljótlega var hann farinn að leika í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.

Í fimm ár var The Cosby Show, sem sýndur var á árunum 1984–1992, vinsælasti sjónvarpsþáttur í Bandaríkjunum. Þættirnir fjölluð um afar geðþekka svarta millistéttarfjölskyldu og þótti Bill bæði skemmtilegur og sjarmerandi. Bill Cosby varð í hugum heimsbyggðarinnar að hinum svarta ameríska pabba sem trúði á ákveðin gildi og mikilvægi þess að berjast fyrir þau. Engan grunaði hversu miklum skugga átti eftir að verða varpað á þá ímynd.

Vinir og kunningjar Cosby vissu að ímyndin var ekki alveg svona hrein. Vitað var að Cosby væri konu sinni, Camillu, ekki trúr en hún er sögð hafa umborið framhjáhald hans meðan hann væri ekki að flagga því. Um 1980 átti hann í stuttu ástarsambandi við konu sem fæddi dóttur og sagði hann vera föðurinn. Hann harðneitaði faðerni en borgaði henni fyrir að fara ekki með málið í fjölmiðla. Rúmum tuttugu árum síðar var meint dóttir hans dæmd í 26 mánaða fangelsi fyrir að hafa beitt hann fjárkúgun. Ekkert DNA-próf hefur verið framkvæmt sem sannar eða afsannar að Cosby sé faðir hennar.

Cosby með eiginkonu sinni Camillu. Með þeim er leikkonan Ruby Dee.
Ekkert fyrirmyndarhjónaband Cosby með eiginkonu sinni Camillu. Með þeim er leikkonan Ruby Dee.

Með eiginkonu sinni eignaðist Cosby fimm börn, fjórar dætur og einn son. Mikill harmur var kveðinn að fjölskyldunni árið 1997 þegar sonurinn Ennis var myrtur þar sem hann var að skipta um dekk á bíl sínum í Los Angeles. Þetta sama ár sagði Camilla um hjónaband sitt: „Við Bill vorum ung þegar við giftumst, hann var 26 ára, ég var 19 ára. Við þurftum að þroskast, við þurftum að læra hvað skilyrðislaust ást er og okkur tókst það. Í hjónabandi okkar ríkir gagnkvæm ást, virðing og traust.“

Afdrifarík kynni

Árið 2004 kynntist Cosby ungri konu, Andreu Constand, og með þeim tókst góð vinátta. Constand er samkynhneigð og var á þessum tíma í sambandi með konu. Hún segist ekki hafa haft neinn áhuga á ástarsambandi við leikarann. Hún hafi litið á Cosby sem einlægan vin og gefið honum gjafir, þar á meðal baðsalt og boli. Cosby gaf henni sömuleiðis gjafir og bauð henni í kvöldverði með valdamiklum vinum. Constand segir hann tvisvar hafa gerst nærgöngull við sig. Kvöld eitt heimsótti Constand Cosby og hann gaf henni þrjár töflur sem áttu að hjálpa henni að slaka á. Töflurnar gerðu hana máttvanda og að hennar sögn setti Cosby hendur sínar á brjóst hennar og kynfæri. Constand segist ekki hafa getað hreyft sig, hún hafi verið eins og frosin.

Ári eftir að atvikið átti sér stað bjó hún hjá foreldrum sínum í Toronto og glímdi við svefnleysi, þunglyndi og kvíða. Hún fékk stundum martraðir og æpti upp úr svefni. Hún einangraði sig frá vinum sínum. Loks sagði hún móður sinni hvað hefði gerst. Constand fór í mál við Cosby sem sagði að allt sem þarna hefði gerst hefði verið með vilja hennar. Cosby náði samkomulagi við Constand um miskagreiðslur árið 2006. Málið var síðan tekið upp síðasta sumar. Þar stóð orð gegn orði. Fjölskylda Cosby stóð með honum í málinu, þar á meðal hin langþjáða eiginkona. Dóttir þeirra, Ensa, segir að rasismi hafi þarna komið við sögu og segir föður sinn hafa verið tekinn af lífi opinberlega.

Málið hefur reynst afdrifaríkt fyrir Cosby. Fjölda samninga við leikarann hefur verið rift, bæði samningum um leik í nýjum þáttum og endursýningum á gömlum þáttum hans. Umboðsskrifsstofa hans rifti sömuleiðis samningi við hann.

Nú er Cosby frjáls maður. Hvort svo verði lengi er hins vegar óljóst. Það ætti hins vegar að vera ljóst að ómögulegt verður fyrir leikarann að endurheimta æruna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

Alda vann til verðlauna annað árið í röð

Alda vann til verðlauna annað árið í röð