fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Eldraunir Dimmu

Magnaðir útgáfutónleikar

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 18. júní 2017 17:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þungarokkhljómsveitin DIMMA sendi frá sér plötuna Eldraunir í maí og af því tilefni blés sveitin til heljarmikilla útgáfutónleika í Háskólabíói laugardaginn 10. júní síðastliðinn. Uppselt var og mikil stemning meðal tónleikagesta sem voru á öllum aldri, allt frá börnum upp í miðaldra rokkara.

Á meðal gesta var rithöfundurinn Stefán Máni sem á hlut í tveimur textum á plötunni. „Þetta eru fyrstu textarnir sem ég frumsem fyrir tónlist en Jón Ólafs gerði lag við ljóðið Leikhús fyrr á árinu,“ segir Stefán Máni. „Nafni minn Jakobsson leitaði til mín með lögin sín og ákveðin þemu fyrir þau. Saman unnum við svo textana og var það mjög gaman og gefandi. Ég er sérstaklega ánægður með Kalda ást enda er sá texti mjög í mínum anda og lagið hreint stórkostlegt. Stefán er magnaður tónlistarmaður og Dimma er frábært rokkband. Ég hvet alla til að sjá þá á Hard Rock 24. júní næstkomandi, annaðhvort um daginn eða kvöldið. Það er mikil upplifun að sjá þessa ljúflinga á sviði.“

DIMMA er að fylgja útgáfu Eldrauna eftir af krafti og auk útgáfutónleikanna hefur DIMMA haldið nokkra tónleika víðs vegar um landið, en þeir næstu eru eins og Stefán Máni nefnir laugardaginn 24. júní á Hard Rock í miðbæ Reykjavíkur og er um að ræða tvenna tónleika, aðra fjölskylduvæna um miðjan daginn og hina standandi tónleika um kvöldið. Einnig mun DIMMA koma fram á helstu tónleikahátíðum landsins svo sem Eistnaflugi, Þjóðhátíð, Neistaflugi og Menningarnótt.

Rithöfundurinn Stefán Máni, Guðjón Guðjónsson, trymbill og hljóðmaður, og goðsögnin Michael Pollock eru allir hæfileikaríkir á fleiri en einu sviði.
Töff hæfileikatríó Rithöfundurinn Stefán Máni, Guðjón Guðjónsson, trymbill og hljóðmaður, og goðsögnin Michael Pollock eru allir hæfileikaríkir á fleiri en einu sviði.
Marta María Jónasdóttir, ritstýra Smartlands, og Páll Winkel fangelsismálastjóri eru glæsileg saman.
Ástfangið par Marta María Jónasdóttir, ritstýra Smartlands, og Páll Winkel fangelsismálastjóri eru glæsileg saman.
Trúbadorarnir, ljúflingarnir og vinirnir Tómas Ó. Malmberg og Ingvar Valgeirsson buðu næstu kynslóð með á tónleika. Stefán „Sveppur“, sonur Ingvars, spilar á gítar og Helga Fanney, dóttir Tómasar, er farin að reyna fyrir sér í söng. Bæði eiga framann vísan og munu leysa feður sína af hólmi fyrr en varir.
Tvær kynslóðir af hæfileikum Trúbadorarnir, ljúflingarnir og vinirnir Tómas Ó. Malmberg og Ingvar Valgeirsson buðu næstu kynslóð með á tónleika. Stefán „Sveppur“, sonur Ingvars, spilar á gítar og Helga Fanney, dóttir Tómasar, er farin að reyna fyrir sér í söng. Bæði eiga framann vísan og munu leysa feður sína af hólmi fyrr en varir.
Feðgarnir S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs Reykjavíkur, og Gylfi voru spenntir fyrir Dimmu.
Flottir feðgar Feðgarnir S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs Reykjavíkur, og Gylfi voru spenntir fyrir Dimmu.
Flestir mættu í svörtu, en Hildur Boga Bjarnadóttir var ein örfárra sem braut þá reglu og mætti litrík og töff.
Töffari í lit Flestir mættu í svörtu, en Hildur Boga Bjarnadóttir var ein örfárra sem braut þá reglu og mætti litrík og töff.
Sonja Sól Einarsdóttir og Ingi Guðnason eru sannir rokkaðdáendur og létu sig ekki muna um rúntinn frá Selfossi.
Rokkarapar Sonja Sól Einarsdóttir og Ingi Guðnason eru sannir rokkaðdáendur og létu sig ekki muna um rúntinn frá Selfossi.
Tónleikarnir voru fjölskyldutónleikar og sjá mátti nokkur börn á öllum aldri. Ragnhildur Dröfn Steingrímsdóttir og Gunnar Diego voru mætt með Gunnar Lárent, fjögurra ára. Sigurdís vinkona þeirra fékk að vera með á myndinni.
Rokk er fyrir alla aldurshópa Tónleikarnir voru fjölskyldutónleikar og sjá mátti nokkur börn á öllum aldri. Ragnhildur Dröfn Steingrímsdóttir og Gunnar Diego voru mætt með Gunnar Lárent, fjögurra ára. Sigurdís vinkona þeirra fékk að vera með á myndinni.
Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Eistnaflugs og Hard Rock, og eiginkonan Hrefna Húgosdóttir, hjúkrunarfræðingur og fræðslustjóri.
Herra Rock og frú Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Eistnaflugs og Hard Rock, og eiginkonan Hrefna Húgosdóttir, hjúkrunarfræðingur og fræðslustjóri.
Vinkonurnar Ása Björg Ásgeirsdóttir og Selma Ragnarsdóttir.
Rokkaralegar Vinkonurnar Ása Björg Ásgeirsdóttir og Selma Ragnarsdóttir.
Ingó Geirdal gítarleikari.
Brjálað rokk Ingó Geirdal gítarleikari.
Hljómsveitin DIMMA eru Ingó Geirdal gítarleikari, Birgir Jónsson trommuleikari, Stefán Jakobsson söngvari og Silli Geirdal bassaleikari.
DIMMA Hljómsveitin DIMMA eru Ingó Geirdal gítarleikari, Birgir Jónsson trommuleikari, Stefán Jakobsson söngvari og Silli Geirdal bassaleikari.
Feðginin Helga Fanney og Tómas Ó. Malmberg eru bæði að gera góða hluti í tónlistinni.
Tónlistarfeðgin Feðginin Helga Fanney og Tómas Ó. Malmberg eru bæði að gera góða hluti í tónlistinni.

Facebooksíða DIMMU

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“