„Sumir vilja líta á alkóhólisma sem smitsjúkdóm eða skyndikvilla og það þurfi bara eina meðferð til að laga hann. Það er argasti misskilningur, þetta er krónískur vandi,“ segir Þórarinn Tyrfingsson í viðtali við helgarblað DV. „Mjög margir byrja að drekka aftur af ýmsum ástæðum, stundum vegna áfalla í lífinu, stundum vegna sjúkdóma eða vegna þess að aðstæður breytast. Vinur minn um áttrætt, sem er mjög heilsuhraustur, var að tala um það hversu illa jafnaldrar hans sumir væru farnir. Hann sagði, og hitti naglann á höfuðið: Þetta er nú bara heppni!“