fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Allir ættu að eiga hund

Jónína Ómarsdóttir kennir unglingum að umgangast hunda:

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 20. maí 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónína, eða Ninna eins og hún er kölluð, kennir nemendum unglingadeildar Rimaskóla í Grafarvogi náttúrufræði. Fyrir þremur árum ákvað Ninna, sem er mikil hundakona og átti þá tvo hunda, að bjóða upp á valáfangann: Hundar sem gæludýr, fyrir nemendur í 8.–10. bekk. Áfanginn sló í gegn og dæmi eru um að nemendur hafi valið hann núna þrjú ár í röð.

„Þetta er ótrúlega skemmtilegt og gaman fyrir krakkana,“ segir Ninna, en það er engin skylda að eiga hund til að geta valið áfangann. Nemendurnir koma ýmist með eigin hunda eða fjölskyldunnar eða fá lánaða hunda. Þeir nemendur sem ekki mæta með hund ganga bara með ef svo ber undir. Markmiðið með valáfanganum er að nemendur læri að umgangast hunda og viti hvað beri helst að varast varðandi hundahald.

Ninna hefur æft maraþonhlaup, gengið á fjöll og hjólað með hundinum sínum víðs vegar um landið.
Perla alltaf með Ninna hefur æft maraþonhlaup, gengið á fjöll og hjólað með hundinum sínum víðs vegar um landið.

Áfanginn bæði verklegur og bóklegur

Það er einn tími á viku þar sem Ninna og nemendurnir fara í gönguferðir um hverfið með hunda í bandi og læra bæði nemendur og hundar þannig að umgangast stóran hóp af hundum. „Við förum mismunandi ferðir í hverfinu og höfum stundum fengið leyfi fyrir lengri gönguferðum,“ segir Ninna. „Hundarnir hafa líka gott af þessu, hundar hér á höfuðborgarsvæðinu eru ekki vanir að ganga í taumi með öðrum hundum og þegar tveir hundar mætast á göngu gelta þeir oft hvor á annan. Síðan eru nemendur að láta hundana leysa alls kyns þrautir og fara með þá í leiki,“ segir Ninna.

Námið er líka bóklegt og fræðir Ninna nemendur um eiginleika hunda, hvernig hirða eigi þá og hvað skuli varast.
„Ég er algjör hundakona sjálf,“ segir Ninna, ég átti tvo þegar ég byrjaði með valáfangann, en núna á ég bara hana Perlu, sem er níu ára og blanda af labrador og íslenskum.

Valið slær í gegn

Valáfanginn hefur verið mjög vinsæll og þess eru dæmi að nemendur hafi valið hann núna þrjú ár í röð, sem er ekkert mál að sögn Ninnu, þar sem hún er með ný verkefni á hverju ári. Einnig koma oft með í göngutúrana nemendur sem eru ekki skráðir í áfangann, en hafa einfaldlega áhuga á að rölta með, vera í samskiptum við hundana og hreyfa sig.
„Útiveran er svo holl og góð og mér finnst að allir ættu að eiga hunda, það hefur svo góð áhrif á geðheilsuna að fara út, anda að sér hreinu lofti á landinu okkar og hreyfa sig,“ segir Ninna. „Samskiptin við hunda eru ánægjuleg, það er alltaf einhver sem kemur fagnandi á móti þér þegar þú kemur heim.“

Nemendur valáfangans ásamt hundum.
Góður gönguhópur Nemendur valáfangans ásamt hundum.

Valáfanginn hefur vakið athygli út fyrir skólann og hyggst Ninna gera meira úr honum í haust. „Það er sambærilegur áfangi í boði í Hagaskóla, einnig hafði kennari í Setbergsskóla samband og skólar á Kjalarnesi. Síðan var ég með gesta-snap hjá Komdu að kenna og það vakti athygli hjá Félagi ábyrgra hundaeigenda, sem birti grein um mig og áfangann, þannig að það væri gaman að meira yrði gert úr þessu í fleiri skólum.“

Það má ganga hvar og hvenær sem er, í björtu eða myrkri, ef réttur fatnaður og búnaður er til staðar.
Göngur eiga alltaf við Það má ganga hvar og hvenær sem er, í björtu eða myrkri, ef réttur fatnaður og búnaður er til staðar.
Perla bíður spennt eftir að komast í göngu.
Besti félaginn Perla bíður spennt eftir að komast í göngu.
Ninna segir að allir ættu að eiga hund, því samskipti við þá eru ánægjuleg og gefandi.
Góð og gefandi Ninna segir að allir ættu að eiga hund, því samskipti við þá eru ánægjuleg og gefandi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“