Reykjavíkurdóttirin fékk dónalega sendingu frá ókunnugum einstaklingi
Leikkonan og Reykjavíkurdóttirin Steiney Skúladóttir fékk heldur óvænta sendingu á samfélagsmiðlum í vikunni og kvaðst ekki vita hvað hún ætti að gera við hana.
Steiney upplýsir á Twitter að hún hafi fengið sendar typpamyndir frá ókunnugum aðila og í óðagoti tekið skjáskot af dónaskapnum. „Veit ekki hvað ég á að gera við þær og þær eru bara í Photos,“ skrifar Steiney við yfirlitsmynd af myndaalbúminu í símanum hennar. Þar gefur að líta myndir af kynlífsathöfnum einstaklinga þar sem hnarreistur limur er í forgrunni, innan um heldur saklausari skíðamyndir sem hún hefur sjálf tekið, væntanlega um páskana.