Í lok ársins 1913 gaf Egill V. Sandholt prentari út nýárskort í formi ávísana. Ávísanirnar voru frá Heilbrigðis- og hamingjubanka Íslands og áttu þær að færa fólki „þrjú hundruð sextíu og fimm gleðilega og hamingjusama daga.“ Egill teiknaði sjálfur ávísanirnar sem voru mjög smekklega úr garði gerðar eins og segir í Morgunblaðinu þann 5. desember árið 1913.
Ávísanirnar voru prentaðar næstu árin en einnig kom það fyrir að nýárskveðjur voru birtar í blöðunum í formi ávísana frá Heilbrigðis- og hamingjubankanum.
Upp úr 1920 virðist siðurinn hafa lagst af og hamingjubankinn hafa lagst í híði í hálfa öld. Þann 20. nóvember árið 1968 var hins vegar greint frá því í Vísi að „nýr banki og nýr gjaldmiðill“ hefði verið stofnaður. Voru þetta sömu ávísanirnar nema hvað innilegum jólaóskum hafði verið bætt við nýárskveðjurnar.