fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Jón og Björn Bragi sigldu saman út í opinn dauðann

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 2. febrúar 2019 08:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eina nótt í maí árið 1963 hurfu tveir ungir menn í Reykjavík, þeir Björn Bragi Magnússon og Jón Björnsson. Björn Bragi var eitt efnilegasta skáld þjóðarinnar sem einnig hafði getið sér gott orðspor sem textahöfundur dægurlaga. Þar á meðal fyrir hið vinsæla sjómannalag Hvítir mávar. Þessa sömu nótt hvarf trilla úr fjöruborðinu á Granda og síðar kom í ljós að þeir höfðu haldið á henni út á sjó. Trillan var botnfleka- og stýrislaus þegar Björn Bragi og Jón  sigldu út í opinn dauðann. Mánuði síðar fundust lík þeirra rekin á fjörur og spurningar hafa vaknað um hvað hafi legið fyrir þeim.

 

Björn Bragi Magnússon
Gaf út ljóðabók sextán ára.

Ungskáld

Björn Bragi Magnússon var aðeins sextán ára gamall þegar hann lét á sér kræla sem skáld. En sjö ára hóf hann að yrkja. Björn var fæddur árið 1940 og haustið 1956 gaf hann út ljóðabókina Hófatak. Björn var sonur Magnúsar Ástmarssonar, bæjarfulltrúa og forstjóra Gutenberg prentsmiðjunnar. Starfaði Björn hjá föður sínum sem prentari samfara námi og að því loknu. Á sextíu ára afmæli Hins íslenska prentarafélags, árið 1957, kom hann fram í útvarpinu og flutti eigin skáldskap. Björn Bragi átti unnustu, Jóhönnu Ragnarsdóttur, sem starfaði við bókband hjá Gutenberg.

Björn var í einstakri aðstöðu til að koma skáldskap sínum á framfæri og setti hann yfirleitt á prent um leið og hann hafði ort. Björn naut þess einnig að þekkja Þórberg Þórðarson, eitt besta skáld Íslandssögunnar. Sambúðarkona Þórbergs, Sólrún Jónsdóttir, var frænka Björns og þau hjónin bjuggu í næsta nágrenni. Áður en Björn gaf út Hófatak fékk hann Þórberg til að lesa hana yfir. Í viðtali við Alþýðublaðið vorið 1957 sagði Björn Þórberg hvorki hafa hvatt hann né latt til útgáfunnar. En hann hafi viljað koma sér á framfæri. „Mér finnst ég hafa sloppið vel frá þessu,“ sagði Björn.

Í sama viðtali sagðist Björn hafa ort um eiginkonu sína.

„Kvæðið Hanna, sem kynnt var í útvarpinu fyrir nokkrum vikum er einmitt um hana. Ég hef ort ansi mikið um konur. Til dæmis get ég nefnt kvæðið Klara. Það birtist í bókinni og byrjar svona:

Hví siturðu hljóð við hafið blátt?

Með hendur í skauti og mælir fátt.

Hví vakirðu fram á niðdimma nátt?

Til norðurs þín augu stara.

Þú veist, að hug minn þú allan átt,

og ást mína, ljúfa Klara.“

Lokaerindið hljómar svo:

„Og hafrænan okkur á bylgjum bar,

til brennandi ástarheima.“

Björn leit fyrst og fremst til seinni tíma skálda og í mestu uppáhaldi voru helstu öndvegisskáld þess tíma, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og Tómas Guðmundsson. En að einhverju leyti leit hann upp til eldri skálda svo sem Bólu-Hjálmars. Sjálfur orti Björn stuðluð kvæði með höfuðstöfum. Magnús var oddviti Alþýðuflokksins í Reykjavík og sonur hans fékk því góðan aðgang að síðum Alþýðublaðsins til þess að birta verk sín. Einnig var hann með reglulegan tónlistardálk í Tímanum.

 

Helena Eyjólfsdóttir
Söng lagið Hvítir mávar árið 1959.

Hvítir mávar

Árið 1958 gaf hann út aðra ljóðabók, Dögg í grasi. Fékk hann kvæði úr henni víða birt, bæði á síðum dagblaðanna og upplesin í útvarpinu. Árið eftir kom út lag sem átti eftir að gera Björn Braga þekktan, nefnilega Hvítir mávar í flutningi hinnar sautján ára gömlu Helenu Eyjólfsdóttur. Var lagið þýskt að uppruna en með texta Björns. Lagið sló í gegn bæði sem dægurlag og sjómannalag. „Hvítir mávar segið þið honum, að mitt hjarta slái aðeins fyrir hann,“ var textabrot sem allir kunnu. Þetta ár eignuðust Björn Bragi og Jóhanna einnig dóttur.

Björn Bragi skrifaði fleiri dægurlagatexta á þessum árum. En hans aðalstarf var sem setjari hjá Gutenberg. Um tíma starfaði hann einnig erlendis, í Noregi, Danmörku og í Finnlandi.

 

Tveir menn og ein trilla

Fimmtudaginn 16. maí var greint frá því í dagblöðum að trillubát hefði verið stolið úr fjöruborðinu við Eiðsgranda tveimur dögum fyrr. Þar sem öskuhaugarnir voru. Var þetta fimm metra langur norskur bátur, svartur að neðan en hvítur að ofan og með grænan borðstokk. Miðað við vegsummerki hafði hann verið sjósettur á spýtum og var leitað með fram sjó að honum. Einnig var lýst eftir bátnum til Akraness, Borgarness og Keflavíkur.

Laugardaginn 18. maí var greint frá því í útvarpi að tveir ungir menn hefðu horfið sporlaust sömu nótt og báturinn. Var hvarf þeirra sett í samhengi við trilluhvarfið. Lýsingin á þeim var eftirfarandi:

„Jón Björnsson, Blönduhlíð 12, tvítugur; var klæddur móbrúnum jakka og gráleitum buxum, berhöfðaður og frakkalaus. Jón er með skolleitt hár, meðalmaður á hæð en grannvaxinn. Hinn er Björn Bragi Magnússon, Granaskjóli 26, 23 ára gamall, meðalhár, grannur, dökkhærður með lítið yfirvaraskegg. Lýsing á fatnaði var ekki fyrir hendi hjá lögreglu.“

Jón hafði starfað hjá Mjólkursamsölunni en hafði hug á tannlæknanámi. Hann var einnig mikill knattspyrnuáhugamaður og þjálfaði yngri pilta hjá Val. Hann fór af heimili foreldra sinna klukkan eitt þessa nótt og sömu nótt var heimafólk hjá Birni vart við að hann fékk heimsókn frá ungum manni. Fór Björn burt með gestinum og sást síðan ekki meir. Björn og Jón voru félagar og síðar áttaði fólkið sig á að gesturinn hefði verið Jón.

 

Leitað í viku

Rannsóknarlögreglan taldi strax að Björn og Jón hefðu tekið bátinn en margt þótti undarlegt við þetta. Báturinn var neglulaus sem þýðir að hann hefur ekki getað flotið langt frá landi áður en sjór flæddi inn í hann. Þar að auki hafði stýrið verið tekið af bátnum og skilið eftir í fjörunni þar sem báturinn hafði staðið og þeir sem tóku bátinn því eingöngu notast við árar. Einnig höfðu botnflekar, eða svokölluð plitti, verið skilin eftir. Hægviðri hafði verið við Granda þessa umræddu nótt en stífari átt og rigning um morguninn.

Eftir að leitað hafði verið árangurslaust í fjörunni við Granda var leitað í Fossvogi og Elliðavogi. Á laugardeginum var leitað í kringum Álftanesið. Björgunarsveitarmenn og skátar hófu einnig leit, á landi, sjó og lofti. Í öllum vogum, sundum, fjörum og eyjum. Fyrrverandi samstarfsmenn Jóns úr Mjólkursamsölunni og fleiri tóku einnig þátt í leitinni. Á Seltjarnarnesi, undan Mýrarhúsum, fundust tvö plitti úr bátnum sem hafði rekið þangað. Eftir viku leit var talið óhugsandi að báturinn væri ofansjávar lengur og leitinni beint að hafsbotninum. Fimmtudaginn 23. maí fannst úlpa rekin á norðanverðu Seltjarnarnesi og fékkst það staðfest að hún hefði verið í eigu Björns Braga. Degi síðar fundust skór annars hvors þeirra í Eiðsvík við Grafarvog. Var leitinni þá formlega hætt.

Björn Bragi og Jón
Sigldu saman út í opinn dauðann.

Líkin rak á land

Þriðjudagskvöldið 11. júní, klukkan 22.00 var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt að lík hefði fundist rekið í Selsvör við Ánanaust, tæpum mánuði eftir hvarf Björns og Jóns. Kennsl voru borin á líkið og var það af Jóni. Var grunur lögreglunnar um að Björn og Jón hefðu farið á sjó á bátnum endanlega staðfestur. Nokkrum dögum síðar fannst lík Björns Braga rekið á Akranesi. Í september þetta ár fannst síðan trillan rekin á fjörur milli Hringbrautar og öskuhauganna. Hún var gerónýt og neglulaus eins og talið hafði verið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar