Ráðalaus kona leitar til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun, Dear Deidre. Kærasti hennar fer að gráta í hvert skipti sem hann fær fullnægingu.
„Ég veit ekki hvað ég er að gera vitlaust,“ segir konan. Hún er 27 ára og hann er 32 ára.
„Hann er guðdómlegur og okkur kemur svo vel saman. Við skemmtum okkur vel á stefnumótum og ferðalögum og rífumst sjaldan. Kynlífið er frábært fyrir mig, en það virðist ekki vera svo gott fyrir hann þar sem hann endar alltaf grátandi.“
Konan segir að þau hafi búið með foreldrum hans um tíma en eru flutt.
„Ég hélt að þetta myndi breytast eftir að við byrjuðum að stunda kynlíf oftar en þetta er verra. Hvað er í gangi?“
Deidre hughreystir konuna og segir:
„Hann fer ekki að gráta því hann er sorgmæddur, heldur akkúrat öfugt. Þetta eru bara náttúruleg viðbrögð líkama hans við þessu tilfinningaríka og kynferðislega ferðalagi sem þið farið á. Þegar þú færð fullnægingu losnar um hormón sem byggist upp á meðan kynlífinu stendur. Það getur verið yfirþyrmandi. Ef þetta truflar ykkur þá getið þið prófað aðrar stellingar svo þetta sé ekki eins yfirþyrmandi.“