Tónlistarkonan heimsfræga Miley Cyrus var gestur í hlaðvarpinu „Call Her Daddy“ sem er í umsjón Alexöndru Cooper. Þar ræddi hún um kynlíf, rómantík og ástarsambönd.
Poppstjarnan greindi frá því að fyrstu sambönd hennar hafi verið með konum, en að hún hafi ekki „farið alla leið“ með gæja, eins og hún orðaði það, fyrr en hún var 16 ára. Það hafi verið með Liam Hemsworth, sem er í dag fyrrverandi eiginmaður hennar.
„Ég vildi ekki fara alla leið með gæja fyrr en ég var 16 ára,“ sagði Miley og bætti við „en ég endaði á því að giftast honum, það er frekar klikkað. “
Hún segist ekki hafa sagt Hemsworth að „hann væri hennar fyrsti“ til þess að virðast ekki vera „lúser“, heldur sagðist hún hafa misst meydóminn með öðrum.
„Ég gat ekki búið neitt almennilegt til, svo ég sagðis bara hafa gert það með einhverjum sem við höfðum hitt, en ég stundaði aldrei kynlíf með þeim aðila í alvörunni,“ sagði Miley. „Vinur Hemsworth endaði síðan á því að giftast þeim sem ég sagðist hafa sofið hjá. Svo sagði Hemsworth við mig „Nú er vinur minn að giftast einhverjum sem þú svafst hjá“ þá var ég 24 ára og ég þurfti að segja honum að ég laug þegar ég var 16 ára. “
„Þetta var lygi sem ég hélt í í nánast tíu ár,“ sagði Cyrus.