Hin 25 ára gamla Anastasiya fæddist í Rússlandi. Hún var uppgötvuð af ljósmyndaranum Anvar Norov þegar hún var sautján ára og tæplega tvítug flutti hún til Bandaríkjanna til að reyna fyrir sér í fyrirsætubransanum. Þar vakti hún athygli fyrir ákaflega ávalar línur og var líkt við drottningu ávölu línanna; sjálfa Kim Kardashian. Það reyndist þrautin þyngri að brjóta sér leið í bransanum og eftir að hafa verið ítrekað hafnað af módelskrifstofum ákvað Anastasiya að nýta sér lögulegar línurnar til hins ítrasta en hún státar ekki af hinum eftirsóknarverðu 90-60-90 líkamsmálum heldur 95-63-105. Auk þess að sitja fyrir hefur hún komið fram í tónlistarmyndböndum og 2017 hannaði hún baðfatalínuna AC-305 í samstarfi við hönnuðinn Eliya Cioccolato sem var sýnd á tískuviku í New York.
Anastasiya hefur heldur betur sótt í sig veðrið á Instagram þar sem hún birtir gjarnan myndir af sér fáklæddri og frá árinu 2017 hefur fylgjendafjöldinn tvöfaldast og er nú 11,3 milljónir. Góðu gengi á Instagram þakkar Anastasiya heiðarleika sínum en hún kveðst birta heilmyndir af sér og aldrei nota fótósjopp. Hún segir línurnar náttúrulegar og segist halda vextinum með ströngu mataræði og reglulegri líkamsrækt „Ég var í íþróttum á mínum yngri árum en núna reyni ég að halda mér í formi og fara í ræktina fjórum sinnum í viku. Ég borða ekki kjöt, sneiði hjá skyndibita og borða hollt,“ segir Anastasiya sem reykir hvorki né drekkur áfengi.
Þrátt fyrir háværar efasemdarraddir þvertekur Anastasiya fyrir að hafa lagst undir hnífinn fyrir utan botnlangaskurð. Hún segist nota sína eigin uppfinningu, sérstakan plástur sem hún kallar Body Curves, sem hún þurfi að nota átta tíma á dag til að brenna aukafitu og segir hann svínvirka með líkamsrækt. Hún segist þó ekki andsnúin lýtaaðgerðum. „Ég lít svo á að ef fólk sé með galla geti það farið í lýtaaðgerðir ef það gerir það hamingjusamt. Ég tel mig vera fullkomna og þarf því ekki að breyta neinu.“
En hvað skildi Anastasiyu finnast um samanburðinn við Kim? „Ég fíla Kim Kardashian en vil ekki láta líkja mér við hana – hún er eftirbátur minn. Ég er sífellt að verða vinsælli svo það er bara tímaspursmál hvenær ég verð þekktari en Kim.