fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Kim sökuð um að hafa fjarlægt rifbein til að minnka mittismál

Tobba Marinósdóttir
Þriðjudaginn 23. júní 2020 15:18

Mittið á Kim hefur minnkað grunsamlega mikið og hafa aðdáendur áhyggjur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mittið á raunveruleikastjörnunni Kim Kardashians virðist hafa náð ævintýralegri smástærð og er nú svo komið að aðdáendur hafa vænt stjörnuna um að hafa látið fjarlægja rifbein til þess að fá mjórra mitti. Heat World greinir frá þessu í dag en upphaf áhyggjanna má rekja til myndar sem stjarnan birti á Instagram í dag af sér í korseletti sem þrengir óhuggulega mikið að mitti hennar. Myndina segir hún vera frá því á síðasta ári og sé hún tekin í London við undirbúning fyrir Met Gala ballið.J

Aðdáendur stjörnunnar lýsa margir yfir óhug í athugasemdum undir myndinni  og spyrja hana hvort hún geti andað í korselettinu og hvort hún hafi látið fjarlægja rifbein.

Kim hefur lengi vel lýst yfir dálæti sínu á svokölluðum waist trainers eða mittisþjálfum sem eru mjög þröng magabelti sem krækt eru yfir kviðinn en hart er deilt um hvort slík belti séu hreinlega hættuleg heilsu fólks. Kim lýsti því yfir í fjölmiðlum á síðasta ári eftir Met Gala þar sem hún klæddi korselettinu sem nú er enn á ný verið að hneykslast yfir að hún hefði þurft að læra öndunartækin til þess að klæðast aðhaldsfatnaðnum á ballinu eftirsótta.

Kim hefur ekki sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar ásakana um rifbeinsmálið svokallað en nokkuð ljóst þykir að líkami hennar er orðin nokkuð afbakaður.

 

 

Kim Kardashian West og Kanye West á Met Gala. Kim er hér í korselettinu hræðilega innanklæða.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433
Fyrir 17 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki

Mjólkurbikar karla: Dramatískur sigur Stjörnunnar á Augnabliki
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.