Ofurfyrirsætan Cara Delevingne og leikkonan Ashley Benson eru hættar saman. E! News greinir frá.
Samkvæmt miðlinum er Cara að njóta þess að vera einhleyp og ver tíma með vinkonum sínum í samkomubanninu.
Það eru um tvö ár síðan þær byrjuðu saman og um ár síðan að þær greindu opinberlega frá sambandi sínu.
Aðspurð af hverju þær hafi ákveðið að greina frá sambandi sínu í fyrra sagði Cara:
„Ég veit það ekki, því það eru hinsegin dagar og 50 ár frá Stonewall-óeirðunum. Það er líka komið ár síðan við byrjuðum saman þannig af hverju ekki.“
Þær hafa hvorugar tjáð sig opinberlega um sambandsslitin.