Li Ziqi er ein vinsælasta og dularfyllsta internet-stjarna Kína. Hún er með um 50 milljón fylgjendur á kínverskum samfélagsmiðlum og um átta milljón fylgjendur á YouTube . Hún er kannski ekki stærsta internet-stjarna Kína en hún er ein sú vinsælasta. South Morning China og Pandaily greina frá. Li er einnig talin vera dularfyllsta internet-stjarnan þar sem hún talar ekki í myndböndunum sínum og gefur mjög sjaldan viðtöl. Hún gaf miðlinum Goldthread viðtal í september síðastliðnum sem má sjá hér að neðan.
Li Ziqi, 29 ára, býr í sveit í Kína. Hún leyfir fylgjendum sínum að fylgjast með daglegu lífi sínu. Hún setur nýja merkingu við að rækta mat frá grunni. Hún ræktar matinn sinn, býr til eigin húsgögn úr bambus og býr einnig sjálf til föt. Til þess að gera silkiklæði ræktar hún fyrsti silkiorma, til þess að gera ullarkápu byrjar hún á því að rækta kindur.
Li eldar hefðbundinn kínverskan mat og er sjálf kokkur. Hún kvaddi borgarlífið fyrir þremur árum þegar hún flutti í sveitina þar sem hún ólst upp með ömmu sinni og afa. Hún hugsar nú um ömmu sína.
Li hefur deilt yfir hundrað myndböndum sem hafa fengið tugi milljóna áhorfa um allan heim. Fylgjendur hennar taka henni fagnandi fyrir að auglýsa hefðbundna kínverska menningu á svona fallegan máta. Í einu myndbandi týnir hún blóm í rauðri herðaslá, í öðru myndbandi býr hún til húsgögn úr bambus á hefðbundinn kínverskan máta.
Horfðu á myndbandið hér að neðan þar sem South China Morning fjallar um þessa dularfullu og vinsælu internet-stjörnu.