Netmiðillinn Jubilee fékk til sín þrjá femínista og þrjá karlréttindasinna (e. men‘s rights activists) til að ræða málin og vonandi finna milliveginn.
Samræðurnar verða mjög áhugaverðar. Jubilee byrjar á því að kasta fram fullyrðingunni: Konur og karlar eru ólík en jöfn. Þeir sem eru sammála þeirri fullyrðingu eiga að útskýra mál sitt og einnig þeir sem eru ósammála henni.
Síðan er rætt um eitraða karlmennsku, hvort hún sé raunveruleg eða ekki.
Horfðu á þau ræða málin hér að neðan.