fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Inga er í yfirþyngd samkvæmt BMI-stuðlinum: „Þetta er bara fáránlegt“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 21. október 2019 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inga Ásgeirsdóttir er fitness keppandi, einkaþjálfari og móðir. Hún er í yfirþyngd. Eða það segir BMI-stuðullinn. Hún vill vekja athygli á óáreiðanleika BMI-stuðulsins fræga. Stuðullinn notar hæð og þyngd til að segja til um heilbrigði manneskjunnar.

„Ég var að keppa á fitness móti fyrir fjórum vikum síðan. Þannig ég er í óeðlilega lágri fituprósentu. Ég er í raun það lág í fitu að líkaminn minn virkar ekki sem skyldi. Ég er ekki búin að fara á blæðingar í marga mánuði. Þannig þó ég sé innan þessara eðlilegu marka þá er ég eins langt frá því að vera það sem við teljum eðlilegt. Líka það að ég sé nær yfirþyngdarmörkunum heldur en undirþyngdarmörkunum meikar líka engan sens. Þetta er svo fáránlegur stuðull,“ segir Inga.

https://www.instagram.com/p/B33sfKNA98x/

„Ástæðan fyrir því að ég setti þyngdina mína í þessa BMI-reiknivél er vegna þess að ég fékk póst frá skóla sonar míns. Hann er að fara í þessa hæða og þyngdarmælingu í vikunni,“ segir hún.

„Þetta virkar náttúrlega enn síður á börn heldur en fullorðið fólk. Börn eru að taka út sinn þroska. Það meikar engan sens að gera þetta á börnum.“

Áður en Inga deildi færslunni á Instagram og Facebook þá settist hún niður og leitaði sér upplýsinga á netinu.

„Mér fannst sláandi að sjá að heilsugæslan, Hjartavernd og mæðravernd eru að fjalla um notkun á þessum BMI-stuðli árið 2019. Heilsukerfið okkar er klárlega enn þá að nota þetta þó þetta sé búið að vera í mikilli umferð upp á síðkastið. Það er enn þá stuðst við þetta þó allir séu búnir að viðurkenna að þetta sé kjaftæði“

Hún segir stuðullinn líka vera huglægan og mörkunum hafi til dæmis verið breytt rétt fyrir aldamót. „Þetta er bara fáránlegt.“

https://www.instagram.com/p/B2YZjhoA5c7/

Inga deildi færslunni inn í Facebook-hópinn Motivation Stelpur og leyndu viðbrögðin sér ekki.

„Mér fannst líka ótrúlega gaman að sjá viðbrögðin í hópnum. Þetta sýnir svo mikið karakterinn hjá íslenskum konum. Mér fannst það geggjað. Þær einhvern veginn veðruðust allar upp, svo mikið á móti þessu. Þetta sýnir hvað íslenskar konur eru grjótharðar, þær hlusta ekki á svona kjaftæði“ segir hún.

Þú getur fylgst með Ingu á Instagram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Mia Khalifa viðurkennir að hún sé á Ozempic

Mia Khalifa viðurkennir að hún sé á Ozempic
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta

Er að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea en ætlar ekki að hætta
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Þessir eru líklegastir til að taka við United í sumar ef Ten Hag verður rekinn

Þessir eru líklegastir til að taka við United í sumar ef Ten Hag verður rekinn
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Af hverju var Glazer að funda með þessum manni í London í gær?

Af hverju var Glazer að funda með þessum manni í London í gær?
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Inter ítalskur meistari eftir sigur á AC – Allt sauð upp úr í restina og þrír fengu rautt

Inter ítalskur meistari eftir sigur á AC – Allt sauð upp úr í restina og þrír fengu rautt

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.