Fimmta og síðasta lestrarátak Ævars vísindamanns hófst í dag og stendur það til 1. mars.
„Allir krakkar í 1.-10. bekk geta tekið þátt, íslenskir krakkar erlendis sömuleiðis og síðast en ekki síst; nú geta foreldrar og forráðamenn tekið þátt líka (og já, ömmur og afar eru að sjálfsögðu foreldrar líka),“ segir Ævar vísindamaður.
Fimm krakkar og eitt foreldri verða dregin úr lestrarmiðapottinum ásamt þeim skóla sem les hlutfallslega mest í átakinu og verða þau öll sett í síðustu bókina í Bernskubrekum Ævars vísindamanns sem kemur út næsta vor.
Á glæsilegum veggspjöldum Þorvalds Gunnarssonar hjá Brandenburg auglýsingastofu má sjá að þetta verður æsispennandi risaeðlu-, vélmenna-, geimveru-, ofurhetjubók!
Hér er splúnkunýtt myndband til að rifja upp reglurnar – og segja frá nokkrum nýjum.
Reglur og lestrarmiða má finna hér. Takið endilega þátt og lesið það sem ykkur langar til að lesa!
Árangri í átakinu má deila á samfélagsmiðla með myllumerkjunum #lestrarátak #ævarvís.
Átakið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, Brandenburg, Þjónustumiðstöð bókasafna, Póstinum, Forlaginu, Heimili og skóli – Landssamtök foreldra og Barnavinafélaginu Sumargjöf.