fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Alþjóðlegt orgelsumar Hallgrímskirkju – fjórða vika að hefjast

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 3. júlí 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórða vika alþjóðlegs orgelsumars Hallgrímskirkju hefst á morgun.
Eftir glæsilega orgeltónleika Elísabetar Þórðardóttur s.l. fimmtudag, frábæra tónleikatvennu Irenu Chřibková frá Prag um helgina og ógleymanlega tónleika Los Angeles Children’s Chorus í gærkvöldi heldur veislan áfram á Alþjóðlega orgelsumrinu í Hallgrímskirkju.

Miðvikudaginn 4. júlí kl. 12 syngur kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, íslenskar og erlendar kórperlur eftir Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Byrd, Mendelssohn, Sigurð Sævarsson, Bruckner og Händel í bland við íslensk þjóðlög. Tónleikagestum er boðið í kaffi og spjall við meðlimi kórsins að tónleikunum loknum. Miðaverð 2.500 kr.

Fimmtudaginn 5. júlí kl. 12 leikur organisti Landakirkju í Vestmannaeyjum, Kitty Kovács, verk eftir Johann Sebastian Bach, Tournemire og hina undurfögru Vocalisu Rachmaninovs. Miðaverð 2.000 kr.

Helgarorganisti vikunnar er hinn heimsþekkti Winfried Bönig aðalorganisti í Kölnardómkirkju, en það er ein eftirsóttasta organistastaða í heiminum. Laugardaginn 7. júlí kl. 12 leikur hann verk eftir Vierne, Herbert Howells ásamt Prelúdíu og fúgu í a-moll eftir Bach og Battagliu eftir Johann Caspar Kerll. Miðaverð 2.000 kr.

Á aðaltónleikum vikunnar, sunnudaginn 8. júlí kl. 17, leikur Winfried Bönig svo verk eftir Karg-Elert, Widor, Chaconne í d-moll eftir Bach og auk þess hið fræga Adagio eftir Samuel Barber. Miðaverð 2.500 kr.

Miðasala í Hallgrímskirkju opnar klukkutíma fyrir hverja tónleika en einnig má kaupa miða á midi.is.

Dagskrá vikunnar má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:

Miðvikudagur 4. júlí kl. 12. Schola cantorum

Efnisskrá:

Íslenskt þjóðlag, úts. Róbert A. Ottósson  Vinaspegill

Íslenskt þjóðlag, úts. Hjámar H. Ragnarsson  Stóðum tvö í túni

Jón Nordal *1926  Smávinir fagrir

Sigvaldi Kaldalóns 1881-1946  Á Sprengisandi

Úts.: Jón Ásgeirsson

William Byrd 1540-1623  Ave verum corpus

Sigurður Sævarsson *1963   Nunc dimittis

Felix Mendelssohn-Bartholdy 1809-1847  Herr, nun lässest du

Anton Bruckner 1824-1896  Locus iste

Georg F. Händel 1685-1759  Dagur er nærri

Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, hefur frá upphafi hlotið mikla athygli fyrir fágaðan og tæran söng sinn. Kórinn var valinn „Tónlistarflytjandi ársins 2016” á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars 2017 og hefur unnið til verðlauna í erlendum keppnum og komið fram á tónleikum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi, Frakklandi, Japan, Sviss og Bandaríkjunum. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2006, tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2007 og Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013. Kórinn hefur frá upphafi leikið mikilvægt hlutverk í íslensku tónlistarlífi og frumflutt verk eftir fjölda íslenskra tónskálda auk þess að flytja tónlist allra stíltímabila með og án hljóðfæraundirleiks, m.a. í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Alþjóðlegu barokksveitina í Hallgrímskirkju (áður Den Haag), Björk, Sigurrós o.fl. Kórinn kom einnig fram á 5 tónleikum á tónlistarhátíðinni Reykjavík Festival í Walt Disney Hall í Los Angeles í apríl 2017, þ.s. söngur kórsins hlaut einróma lof í allri umfjöllun stórblaða svo sem New York Times, LA Times o.fl. Stjórnandi kórsins frá upphafi er Hörður Áskelsson.

Fimmtudagur 5. júlí kl. 12 Kitty Kovács, organisti Landakirkju

Efnisskrá:

Johann Sebastian Bach 1685‒1750

Prelúdía og fúga í a-moll BWV 543

Serge Rachmaninoff 1873‒1943

Vocalise, op. 34 nr. 14

Úts.: Kitty Kovács

Charles Arnould Tournemire 1870‒1939

Victimae paschali

Choral improvisation skráð 1958 úr Cinq Improvisations 1931, nr. IV

af Maurice Duruflé (1902‒1986)

Kitty Kovács er fædd í Győr í Ungverjalandi árið 1980 og útskrifaðist árið 2003 frá tónlistardeild Széchenyi István háskólans þar í borg með diplómu í píanó- og kammertónlist. Eftir útskriftina starfaði hún sem undirleikari í Győr og lagði síðan stund á undirleikaranám við Ferenc Liszt Akademíuna í Búdapest. Á námsárum sínum vann hún í píanókeppnum, m.a. árið 1997 í Salt Lake City og árið 2000 varð hún í 3. sæti í Chopin keppninni.

Kitty kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað sem píanókennari og organisti, frá árinu 2011 hefur hún verið organisti Landakirkju í Vestmannaeyjum og kennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja.

Undanfarin 4 ár hefur Kitty stundað orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar og nú í vor lauk hún einleikaraáfanga þaðan. Kennari hennar þar var Lenka Mátéová.

Laugardagur 7. júlí kl. 12 Winfried Bönig, aðalorganisti Kölnardómkirkju

Efnisskrá:

Johann Caspar Kerll 1627‒1693 Battaglia

Johann Sebastian Bach 1685‒1750 Prelúdía og fúga í a-moll, BWV 543

Herbert Howells 1892‒1983 Psalm Prelude nr. 3

Louis Vierne 1870‒1937 Finale

Úr Orgelsinfóníu nr. 6.

Sunnudagur 8. júlí kl. 17 Winfried Bönig, aðalorganisti Kölnardómkirkju

Efnisskrá:

Sigfrid Karg-Elert 1877‒1933 March pontificale, op. 141/3

Johann Sebastian Bach 1685‒1750 Chaconne í d-moll

Úr Partitu fyrir einleik á fiðlu BWV 1004

Umr.: Wilhelm Middelschulte 1863‒1943

Samuel Barber 1910‒1981 Adagio

Charles-Marie Widor 1844‒1937 Úr Orgelsinfóníu nr. 8, op. 42/4

I Allegro risoluto

VI Adagio

VII Final

Frá 2001 hefur Winfried Bönig verið aðalorganisti Kölnardómkirkju sem er ein virtasta organistastaða í heiminum. Hann er einnig prófessor í orgelleik og spuna við Tónlistarháskólann í Köln og yfirmaður kaþólsku kirkjutónlistardeildarinnar þar.

Winfried Bönig er fæddur árið 1959 í Bamberg, Þýskalandi og stundaði nám í orgelleik, stjórnun og kirkjutónlist við Tónlistarháskólann í München hjá Franz Lehrndorfer, organista kaþólsku dómkirkjunnar í München. Hann lauk öllum prófum með láði, þar með talið meistaragráðu. Árið 1993 lauk hann doktorsprófi í tónlistarfræði við háskólann í Augsburg.

1984‒1998 var Bönig organisti við Kirkju heilags Jósefs í Memmingen í Bæjaralandi.

Bönig er mjög vinsæll konsertorganisti og hann hefur komið fram víða um heim auk þess sem honum hefur oft verið boðið að leika við vígslu nýrra orgela. Þá hefur hann frumflutt fjölda verka sem hafa verið tileinkuð honum, m.a. verk eftir Jean Guillou, Naji Hakim, Stephen Tharp og Daniel Roth. Þá hafa tónleikaraðir hans þar sem hann hefur leikið öll orgelverk J.S. Bachs, Max Regers og Olivier Messiaen vakið mikla athygli og eru meðal mikilvægustu tónleika hans.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki

Styttist í barnamenningarhátíð í Reykjavík – Vegleg dagskrá og börnin í aðalhlutverki
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann

Kostar sitt að kúka í Lystigarðinum – Akureyrarbær tvöfaldar verðmiðann
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni
Eyjan
Fyrir 8 klukkutímum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt