fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Átta tilnefningar: Forvitnilegustu kynlífslýsingar ársins

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 4. apríl 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rauða hrafnsfjöðrin, verðlaun fyrir forvitnilegustu kynlífslýsingu ársins í íslenskum bókmenntum, verður veitt á aðalfundi Lestrarfélagsins Krumma 6. apríl næstkomandi. Átta rithöfundar eru tilnefndir í ár, en þetta er í tólfta sinn sem viðurkenningin er veitt.

Fyrri hrafnsfjaðrarhafar eru Eiríkur Örn Norðdahl fyrir Eitur fyrir byrjendur 2006, Elísabet Jökulsdóttir fyrir Heilræði lásasmiðsins 2007, Hermann Stefánsson fyrir Algleymi 2008, Steinar Bragi fyrir Himininn yfir Þingvöllum, 2009, Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir og Magnús Þór Jónsson, Megas, fyrir Dag kvennanna – ástarsögu 2010, Sigríður Jónsdóttir fyrir ljóðasafnið Kanil 2011, Auður Ava Ólafsdóttir fyrir Undantekninguna 2012, Sjón fyrir Mánastein 2013, Soffía Bjarnadóttir fyrir Segulskekkju 2014, Bergsveinn Birgisson fyrir Geirmundar sögu heljarskinns 2015 og Sigurbjörg Þrastardóttir fyrir örsagnasafnið Óttaslegni trompetleikarinn og aðrar sögur 2016.

Tilnefningar fyrir forvitnilegustu kynlífslýsingu ársins 2017 í íslenskum skáldverkum eru eftirtaldar:

„Þá sá hann tvo hvíta belgi sem hann hélt fyrst að væru litlir feitir englar úr Rubens-málverki, en þegar betur var að gáð reyndust þetta vera rasskinnar konu, óvenju stórar því þær flöttust út á glerinu eins og risastórar hvítar pönnukökur. Við rasskinnarnar loddu eistu sem hreyfðust nær og fjær eins og pendúlar fastir við loðna fótleggi, hálfklædda í jakkafatabuxur og karlmannsskó en þrengdu sér núna á milli snjóhvítra læra og leggja í leðurstígvélum.“ (Þórarinn Leifsson, Kaldakol.)

„Eitt kvöldið, í miðjum atlotum beit Owen léttilega í eyrað á Mána og hvíslaði seiðandi: „Rauður leður reður sarð Urði niðri … “ sem hann svo svaraði með því að kyssa hana létt á hálsinn og þylja upp úr sér löturhægt: „Þríbrotin blýkringla, þríbrotin blýkringla … “ Er hiti fór að færast í leikinn fikraði hann sig niður eftir sveittum líkamanum og bleytti hann ennfremur með löngum og munaðarfullum sér- og samhljóðum; brjóstin fengu „mmmma mmmá, mmmme, mmmmé …“ og í naflanum hljómaði djúpt „tuuu, túúú, tííí, tóóó“. Á innanverðum lærunum purraði hann löng ypsílon ý og loks, fyrir neðan mitti, hófst hann handa við að þjálfa tunguna með sérhæfðum styrktaræfingum; upp, niður, og til hliðar og hratt og hægt, og hratt, og hægt og í hægri hring, og í vinstri hring … “ (Adolf Smári Unnarsson, Um lífsspeki ABBA & Tolteka (eða líf mitt sem Olof Palme).)

„Og kynlífið var skelfilega rútínerað. Aldrei neinar spennandi uppákomur eða nýbreytni. Kossar og strokur. Hann saug á henni brjóstin. Hann kom inn í hana. Oftast ofan á. Út og inn í fimm mínútur. Hann kom. Og svo allt búið.“ (Friðrika Benónýsdóttir, Vályndi).

„Endir

Á morgun er kominn nýr dagur.

Opið allan sólarhringinn og allt er ókeypis!

En svo kemur að því að dagarnir verða ekki fleiri.

Skondrumst því þangað

sem ekki er spurt um skilríki.

Og ég veit að þú segir já

þegar ég spyr hvort þú viljir

ríða mér í þessum einstaka mosa

sem tekur sér 100 ár til að fullorðnast.“

(Solveig Thoroddsen, Bleikrými)

 

„Sir John Vincent Hurt, CBE (1940-2017)

Inert“

(Breki Karlsson, Náljóð III)

„„Ekki,“ stundi hún í eyra mitt. Allt í kringum okkur glumdu við hlátrasköll, kliður, glös sem skullu saman, hróp yfir barborðið. Ég læddi fingrum undir kjólinn, dró nærbuxurnar til hliðar, stakk löngutöng inn í hana, hún kipptist við og stundi, fálmaði aftur fyrir sig og greip um klofið á mér. Ég hertist allur við snertinguna, typpið á mér stífnaði eins og eldhúsrúlluhólkur í gallabuxunum, titraði af stressi þegar ég elti hana að klósettinu.“ (Halldór Armand, Aftur og aftur).

„Skoltar samviskunnar myndu örugglega bíta hana síðar fyrir að sofa hjá þessum lofaða manni. En hér og nú, á fögru  tígulsteinalögðu torginu í Gamla stan, leið henni bara prýðilega í návist hans. Var meira að segja sæmilega fullnægð – hafði aðeins þurft að bæta örlítilli fingrafimi við atlot hans um nóttina til að finna upplýst rjóðrið sem þau stefndu á í áfengisþokunni. Verra gat það verið.“ (Eiríkur Bergmann, Samsærið)

„Haustvísa
Innanverð augnlokin veggfóðruð lyngi
alsettu bústnum berjum.
Innanverð leggöngin: holt bleikrými saknaðar.
Sytrar úr veggjum.“
(Solveig Thoroddsen, Bleikrými).

Lárus Blöndal, stjórnarmaður í Lestrarfélaginu Krumma, afhendir Sigurbjörgu Þrastardóttur Rauðu hrafnsfjöðrina í fyrra.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Villa staðfestir gleðitíðindin

Villa staðfestir gleðitíðindin
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“