fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Hekla Magnúsdóttir fylgir sínum eigin reglum: Drungi, birta og takmarkalausir möguleikar

Tómas Valgeirsson
Sunnudaginn 19. ágúst 2018 18:30

Mynd: Ómar Sverrisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Hekla Magnúsdóttir byrjaði að læra á selló níu ára gömul en hefur spreytt sig í þeramínleik að stórum hluta þennan áratug. Segja má að tónlist renni um æðar hennar enda er faðir hennar tónlistarmaðurinn, leikarinn og fyrrverandi GusGus-meðlimurinn Magnús Jónsson.

Árið 2014 gaf hún út fyrstu smáskífuna sína, Hekla, við góðar undirtektir og vann tónlistarverðlaunin Kraumur á því sama ári. Þann 14. september gefur hún út sína fyrstu breiðskífu sem ber heitið Á og byggir sú plata aðallega á þeramínleik og söng.

Ástríða hennar fyrir tónsmíðum kom þegar hún uppgötvaði þeramínhljóðfærið og fór að fikta við ýmiss konar hljóðbrellur. Þá fann hún smjörþefinn af ánægjunni við ferlið að skapa eitthvað nýtt og hefur hvorki eldmóðurinn né sköpunargleðin stöðvað síðan. „Í dag á ég til að gleyma alveg stund og stað við æfingar og missi allt tímaskyn,“ segir Hekla.

Mynd: Ómar Sverrisson

Faldi sig á bak við hljóðbrellur

Að sögn tónlistarkonunnar laðaðist hún að þeramíni af tveimur lykilástæðum; fyrir það fyrsta er hljóðfærið tiltölulega nýtt og í öðru lagi fylgja engar fastar reglur um hvernig eigi að spila á það. „Þetta býður einfaldlega upp á svo ótrúlega marga möguleika, nánast takmarkalausa,“ segir hún.
„Þegar ég byrjaði vissi ég í rauninni ekkert hvað ég var að gera. Ég gerði bara „hljóðeffekta“ og kunni varla að spila neitt. Síðan gekk ég til liðs við brimbrettasveitina Bárujárn og gerði þar ýmis hljóð,“ segir Hekla.

Hljómsveitin Bárujárn var stofnuð haustið 2008 í Reykjavík og spilaði hressilegt brimbrettarokk með drungalegum undirtón. Árið 2010 var bandið sigurvegari í hljómsveitakeppninni Þorskastríðið, sem að mati Heklu var afar hvetjandi afl í að prófa sig meira áfram. „Með tímanum varð ég betri og betri í þeirri list að leika mér með alls konar mótíf, en ég lærði samt heilmikið á því að fela mig á bak við effektana.“

Hekla lýsir stíl sínum sem heldur frjálslegum enda unninn að miklu leyti út frá spuna. „Ég „layera“ oft margar raddir, þannig að útkoman verður eins konar þeramínkór,“ segir hún. „Mörgum gæti þótt stíll minn frekar þungur, jafnvel drungalegur en hann á það líka til að vera mjög bjartur.“
Undir spænskum áhrifum

Mynd: Sigga Ella

Tónlistarkonan er nú búsett í Berlín en ólst upp að stórum hluta á Spáni. Þá tekur hún fram að töluverð áhrif spænskrar tónlistar læðist í hennar eigin. Hekla kann sérstaklega vel við tónlistarsenuna í Þýskalandi og segir fjölbreytileikann vera einn af betri kostum Berlínar. „Það eru tónleikar úti um allt hérna og auðvelt að bæði skipuleggja og gera hluti hérna.“Aðspurð um áhrifavalda sína segir Hekla listann vera ótæmandi, en popptónlist talar sérstaklega til hennar og nefnir hún Madonnu, Kylie Minogue og Backstreet Boys sem stóra þátttakendur í hennar tónlistaruppeldi. Hvað áhrifavalda í þeramínleik varðar segir hún stöllurnar Clöru Rockmore og Pameliu Stickney koma fyrst upp í hugann.

Hún segir tónlistina fyrst og fremst eiga hvað stærsta sessinn í sínu hennar en helstu áhugamál hennar auk þess að endurraða húsgögnunum heima hjá sér eru, eins og hún segir, góðar vísindaskáldsögur og hryllingsmyndir. Þannig vill til að stór draumur hjá Heklu er að prófa sig áfram í kvikmyndatónlist og þá sérstaklega í þessum tilteknu geirum, en það væri ekki í fyrsta sinn.

Hekla hefur hingað til unnið að tónlist fyrir tvær kvikmyndir; önnur er frönsk kvikmynd og ber heitið Les Garçons Sauvages (The Wild Boys á ensku) og er þar um að ræða vísindaskáldsögu með hrollvekjuívafi. Fyrir þá mynd samdi Hekla helming tónlistarinnar á móti Pierre Desprats. Hin myndin er aftur á móti dramamynd en þar mun Hekla alfarið sjá um tónlistina. Sú mynd ber heitið Stories from the Chestnut Woods og er framleidd í Slóveníu.

Kúnstir með pítsusneið

Ástæðan fyrir því að nafnið Á kom til sem heiti breiðskífu Heklu er sú að orðið hefur svo fjölbreytta merkingu, ekki ólíkt því hvernig fólk getur túlkað ákveðna tónlist með mismunandi hætti. Allt fer það eftir því hvernig viðkomandi tengir sig við þá tilteknu hljóma sem heyrast.

Hekla bíður að öðru leyti spennt eftir viðbrögðum en heldur sér upptekinni við fleiri músíktilraunir og spilar af og til opinberlega. Aðspurð hvaða tónleikaminning standi einna helst upp úr svarar hún kát: „Einu sinni spilaði ég á þeramínið með pítsusneið. Reyndar voru aðrir sem þurftu að minna mig á það, enda var ég sjálfsagt komin fullmikið í glas á þeim tímapunkti, en ég efa ekki að upplifunin hefur reynst öðrum minnisverð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool

Telur að Salah sé fyrir löngu búinn að semja við annað lið en Liverpool
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Sárnaði að vera sökuð um að vera drusla í beinni útsendingu

Sárnaði að vera sökuð um að vera drusla í beinni útsendingu
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Ísraelskar konur hafa gert þetta í 70 ár

Ísraelskar konur hafa gert þetta í 70 ár
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arsenal skapaði sér lítið og er úr leik í Meistaradeildinni

Arsenal skapaði sér lítið og er úr leik í Meistaradeildinni
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Segir Emil með troðfullt rassgat af peningum – „Beðið eftir því að síminn pingi að Stjarnan sé búinn að millifæra 1,2 milljónir“

Segir Emil með troðfullt rassgat af peningum – „Beðið eftir því að síminn pingi að Stjarnan sé búinn að millifæra 1,2 milljónir“