fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Skyggnst inn í þróun hinsegin skemmtanalífs með pöbbarölti

Tómas Valgeirsson
Föstudaginn 10. ágúst 2018 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Íslenskt hinseg­in skemmtana­líf hef­ur verið alls kon­ar í gegn­um árin, leynt og ljóst, há­vært og lág­vært.“ Þetta segir í blaði Hinseg­in daga um hið svonefnda Hinsegin pöbbarölt, sem hefst í kvöld, föstudag, klukkan sex. Í blaðinu segir einnig að sam­kyn­hneigðir karl­menn á Íslandi hafi daðrað við her­menn á Borg­inni á fimmta ára­tug síðustu ald­ar, að sam­kyn­hneigðar kon­ur hafi leitað skjóls í Stúd­enta­kjall­ar­an­um og að dragið hafi blómstrað á Rauðu myll­unni.

Gunnlaugur Bragi Björnsson, viðskiptafræðingur og formaður Hinsegin daga, lýsir þessari spennandi nýjung sem byggir að hluta til á grein sem Hilmar Hildarson-Magnússon tók saman á 30 ára afmæli Samtakanna ’78 árið 2008. „Þá tók Hilmar umfjöllun á söguna og hvernig skemmtanalífið fór fram og hefur þróast. Þessi ferð okkar byggir svolítið á hans grein og verða heimsóttir þarna nokkrir staðir með sögu og nokkrum drykkjum í leiðinni,“ segir Gunnlaugur.

Þetta er í fyrsta skiptið sem Hinsegin pöbbaröltið fer fram og verður gengið frá Hlemmi og endað á Naustinu en þaðan er örstutt rölt að gömlu höfninni þar sem hefst sigling klukkan 21.

„Í gegnum tíðina hafa verið fjölmargir hinsegin skemmtistaðir, sjaldnast margir í einu, en bæði hinsegin staðir eða staðir sem ýmist fólk hefur tekið að sækja og gert að sínum að einhverju leyti. Þarna eru auðvitað ýmsir aðrir skemmtistaðir eða einfaldlega allt annar rekstur í dag, en þarna ætlum við að stoppa og skyggnumst inn í þá stemningu sem þarna var. Einnig ætlum við að heyra sögur um hvað gerðist og hvað fólkinu fannst sem sótti þessa staði á þeim tíma.“

Að sögn Gunnlaugs er um lítinn viðburð að ræða með takmarkað miðaframboð en segir hann fólk hafa almennt tekið vel í hugmyndina. „Þetta fer fram á íslensku en ef vel gengur er aldrei að vita nema við endurtökum leikinn seinna og þá mögulega á öðrum tungumálum, þannig að erlendir gestir geti átt auðveldara með að slást í hópinn,“ segir Gunnlaugur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Kemur vel til greina að fyrrum stjóri United taki við Bayern – Einum færri á blaði eftir fréttir dagsins

Kemur vel til greina að fyrrum stjóri United taki við Bayern – Einum færri á blaði eftir fréttir dagsins
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“