Í kvöld kl. 19 verður skemmtileg ganga um Reykjavík þar sem hinsegin bókmenntir verða í brennidepli.
Ásta Kristín Benediktsdóttir íslenskufræðingur leiðir gönguna.
Gangan er hluti af Kvöldgöngum sem eru í umsjón Borgarbókasafnsins, Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns Reykjavíkur.
Mikill áhugi hefur verið á kvöldgöngum sumarsins eins og sást í síðustu göngu sem Borgarbókasafnið stóð fyrir, en þá var gengið um áfengislausan höfuðstað, en myndirnar hér fyrir neðan eru frá þeirri göngu.
Hér má sjá fleiri viðburði Borgarbókasafnins.