fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Alþjóðlegt orgelsumar Hallgrímskirkju – sjöunda vika að hefjast

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 24. júlí 2018 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir fágaðan flutning Láru Bryndísar Eggertsdóttur á nýlegri íslenski orgeltónlist síðastliðinn fimmtudag og tvenna ótrúlega tónleika franska spunameistarans Thierrys Escaich um helgina heldur Alþjóðlega orgelsumarið í Hallgrímskirkju vonandi áfram að heilla hrifnæma tónleikagesti með fernum tónleikum í þessari viku.

Thierry Mechler organisti Fílharmóníunnar í Köln og Lára Bryndís

Miðvikudaginn 25. júlí kl. 12 syngur kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, íslenskar og erlendar kórperlur eftir Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Händel, Byrd, Sigurð Sævarsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Tónleikagestum er boðið í kaffi og spjall við meðlimi kórsins að tónleikunum loknum. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Miðaverð 2.500 kr.

Fimmtudaginn 26. júlí kl. 12 leikur einn fremsti organisti okkar af ungu kynslóðinni, Lára Bryndís Eggertsdóttir, verk eftir G. Pierné og Bedrich Smetana (Moldau). Miðaverð 2.000 kr.

Laugardaginn 28. júlí kl. 12 leikur franski organistinn og tónskáldið Thierry Mechler verk eftir Bach (Goldberg-tilbrigðin),Boëly og sjálfan sig. Mechler er organisti Fílharmóníunnar í Köln og einnig orgelprófessor í sömu borg. Miðaverð 2.000 kr.

Á seinni tónleikum sínum, sunnudaginn 29. júlí kl. 17 leikur Thierry Mechler verk eftir Rameau, Fauré, Ravel, Satie, Poulenc, Dutilleux (Hommage à Bach), Debussy (Hommage à Rameau) og sjálfan sig. Miðaverð 2.500 kr.

Miðvikudaginn 25. júlí kl. 12: Schola cantorum

Efnisskrá:

Vorvísa Texti: Halldór Laxness 1902‒1998

Músik: Jón Ásgeirsson *1928

Smávinir fagrir Texti: Jónas Hallgrímsson 1807‒1845

Músik: Jón Nordal *1926

Á Sprengisandi Texti: Grímur Thomsen 1820‒1896

Músik: Sigvaldi Kaldalóns 1881‒1946

Úts.: Jón Ásgeirsson

Dagur er nærri Kristján Valur Ingólfsson, *1947

Músik: George Fridrich Handel 1675‒1759

Ave Verum Corpus Texti: Latneskur hymni

Músik: Willian Byrd 1540‒1623

Nunc dimittis Texti: Luk. 2. 29–32

Músik: Sigurður Sævarsson *1963

Heyr, himna smiður Texti: Kolbeinn Tumason 1173–1208

Músik: Þorkell Sigurbjörnsson 1938–2013

Stóðum tvö í túni Texti: Þjóðvísa

Músík: Ísl. Þjóðlag

Úts.: Hjálmar H. Ragnarsson *1952

Grafskrift Texti: Þjóðvísa

Músík: Ísl. þjóðlag

Úts.: Hjálmar H. Ragnarsson

Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, hefur frá upphafi hlotið mikla athygli fyrir fágaðan og tæran söng sinn. Kórinn var valinn „Tónlistarflytjandi ársins 2016” á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars 2017 og hefur unnið til verðlauna í erlendum keppnum og komið fram á tónleikum í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi, Frakklandi, Japan, Sviss og Bandaríkjunum. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2006, tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2007 og Íslensku tónlistarverðlaunanna 2013. Kórinn hefur frá upphafi leikið mikilvægt hlutverk í íslensku tónlistarlífi og frumflutt verk eftir fjölda íslenskra tónskálda auk þess að flytja tónlist allra stíltímabila með og án hljóðfæraundirleiks, m.a. í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Alþjóðlegu barokksveitina í Hallgrímskirkju (áður Den Haag), Björk, Sigurrós o.fl. Kórinn kom einnig fram á 5 tónleikum á tónlistarhátíðinni Reykjavík Festival í Walt Disney Hall í Los Angeles í apríl 2017, þ.s. söngur kórsins hlaut einróma lof í allri umfjöllun stórblaða svo sem New York Times, LA Times o.fl. Stjórnandi kórsins frá upphafi er Hörður Áskelsson.

Fimmtudaginn 26.júlí kl. 12: Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti, Reykjavík

Efnisskrá:

Gabriel Pierné 1863‒1937 Trois Pièces, op. 29

Prélude

Cantilène

Scherzando

Bedřich Smetana 1824‒-1884 Vltava/Moldá

Umr.: Barbara Bannasch/LBE

Lára Bryndís Eggertsdóttir byrjaði ung að læra á píanó og þegar hún var 14 ára gömul tók hún fyrstu skrefin sem afleysingaorganisti í Langholtskirkju. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar með hæstu einkunn vorið 2002 undir handleiðslu Harðar Áskelssonar. Lára Bryndís er nýflutt aftur heim til Íslands eftir 10 ára búsetu í Danmörku þar sem hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014. Aðalkennarar hennar þar voru Ulrik Spang-Hanssen og Lars Colding Wolf. Undanfarin ár hefur hún starfað sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum.

Laugardaginn 28. júlí kl. 12: Thierry Mechler organisti Fílharmóníunnar í Köln

Efnisskrá:

Johann Sebastian Bach 1685‒1750

Aría og sex Goldberg tilbrigði

Alexandre Pierre François Boëly 1785‒1858

Fantaisie sur le Judex Crederis

úr Te Deum, allegro pastorale í G-dúr

og allegro agitatio í g-moll

Thierry Mechler *1962 Spuni

Sunnudaginn 29. júlí kl. 17: Thierry Mechler organisti Fílharmóníunnar í Köln

Efnisskrá:

Jean-Philippe Rameau 1683‒1764 Les Sauvages

L’Enharmonique

Le Rappel des Oiseaux

Gabriel Fauré 1845‒1924 Improvisation, op. 84, nr. 5

Maurice Ravel 1875‒1937 Prélude et fugue

úr Tombeau de Couperin

Erik Satie 1866‒1925 Prière des Orgues

Francis Poulenc 1899‒1963 Toccata

Henri Dutilleux 1916‒2013

Improvisation et Hommage à Bach

Claude Debussy 1916‒2013

Hommage à Rameau (Images I)

Thierry Mechler *1962 Triptychon-Organum, op. 15, 2017

In necessariis unitas (Í nauðsynlegum efnum, einhugur), Offertorium

In dubiis libertas (Í óvissum efnum, frelsi), Communio

In omnibus caritas (Í öllum efnum, kærleikur), Postludium

Franski organistinn og tónskáldið Thierry Mechler er frá syðsta hluta Elsass í Frakklandi þar sem hann býr ásamt fjölskyldu sinni. Hann er orgelleikari Fílharmóníuhljómsveitar Kölnar og prófessor í orgelleik og orgelspuna við Tónlistar- og dansháskólann í Köln.

Thierry var í orgelnámi hjá Daniel Roth í Strassborg og hjá Marie Claire Alain í París, spuna hjá Jacques Taddei og píanóleik hjá Hélène Boschi.

Allt frá námsárum sínum hefur Thierry verið vinsæll konsertorganisti og hann hefur haldið tónleika víðs vegar um heiminn auk þess sem hann er virtur dómari í orgelkeppnum og eftirsóttur sem fyrirlesari og kennari á meistaranámskeiðum.

Árin 1986‒1989 kenndi hann við ríkistónlistarháskólann í Annecy. Árið 1984 varð hann organisti Frúarkirkjunnar í Thierenbach í Elsass og frá 1991 til 1999 var hann aðalorganisti Dómkirkjunnar í Lyon. Á sama tíma var hann listrænn stjórnandi Alþjóðlegu orgelhátíðarinnar í Maurice Ravel tónlistarsalnum þar í borg. Árið 1998 var hann svo ráðinn orgelprófessor í Köln og starfið við Fílharmóníuna bættist við 2002.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk
433
Fyrir 14 klukkutímum

Evrópudeildin: Marseille áfram eftir vítaspyrnukeppni – Svona líta undanúrslitin út

Evrópudeildin: Marseille áfram eftir vítaspyrnukeppni – Svona líta undanúrslitin út
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“