fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fókus

Þáttur sem aldrei bregst

Allt er til fyrirmyndar í 60 mínútum

Kolbrún Bergþórsdóttir
Fimmtudaginn 23. febrúar 2017 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Varla er hægt að bera of mikið lof á fréttaskýringaþáttinn 60 mínútur sem er á dagskrá Stöðvar 2. Það er þáttur sem aldrei bregst. Auðvitað er það þannig að maður hefur ekki áhuga á öllu, en það er eiginlega alveg sama hvað er tekið fyrir í 60 mínútum, maður getur ekki annað en fylgst með.

Á dögunum var fjallað um söngleikinn Hamilton sem gengur fyrir fullu húsi í Bandaríkjunum og slegist er um miða á hverja sýningu. Rætt var við höfund söngleiksins, Lin-Manuel Miranda, 37 ára gamlan snilling. Hann hefur fengið Pulitzer-verðlaunin, unnið til þrennra Tony-verðlauna, tvennra Grammy-verðlauna, fengið Emmy-verðlaun og verið tilnefndur til Óskarsverðlauna. Í fyrra var hann á lista tímaritsins Time yfir 100 áhrifamestu persónur heims. Viðtalið við Miranda sýndi tilfinningaríkan, hlýjan og næman mann með fullkomnunaráráttu. Sýnd voru atriði úr sýningunni um leið og rifjuð var upp saga Alexanders Hamilton sem var fyrsti fjármálaráðherra Bandaríkjanna og lést um aldur fram eftir heimskulegt einvígi sem hann hefði aldrei átt að leggja út í. Fólk gerir ótrúlegustu vitleysur i lífinu og sumar reynast dýrkeyptar.

Þessi umfjöllun í 60 mínútum var lifandi, skemmtileg og aðgengileg. Við, unnendur söngleikja, gleðjumst alltaf þegar þeir slá í gegn. Lífið væri svo miklu skemmtilegra og auðveldara ef fólk hefði vit á að syngja meira.

Á eftir umfjölluninni um Hamilton var fjallað um kórinn í Páfagarði og rætt við unga drengi sem þar syngja. Þeir voru spurðir skemmtilegra spurninga eins og hvernig páfinn væri. Þeir sögðu að hann væri alveg óskaplega skemmtilegur maður. Gott að vita af því!

Sjálfumglaðir fjölmiðlamenn eru afar hvimleiðir en í 60 mínútum eru fréttamennirnir ekki að setja sig á háan hest. Þeir hafa einlægan áhuga á viðmælanda sínum og sinna öllu sem þeir taka sér fyrir hendur af áberandi fagmennsku. Þeir eru stöðugt á vaktinni og hafa reyndar sumir hverjir verið það í áratugi. Enginn yfirmaður þeirra hefur tekið upp á því að skipta þeim út fyrir yngri og fríðari andlit, enda væri það óráð. Fréttamennirnir í 60 mínútum eru reynsluboltar sem virðast aldrei hafa lent í því sem kallast kulnun í starfi. Þeir eru enn á sama stað vegna þess að þeir hafa brennandi áhuga á vinnu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hvað er hvítasunna?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sjónvarpsstjarnan óþekkjanleg á nýjum myndum – Hefur hrakað hratt

Sjónvarpsstjarnan óþekkjanleg á nýjum myndum – Hefur hrakað hratt
Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur og faðir hennar grunuð um að brugga ískyggileg launráð

Áhrifavaldur og faðir hennar grunuð um að brugga ískyggileg launráð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svona kemurðu í veg fyrir að barnið þitt verði narsissisti

Svona kemurðu í veg fyrir að barnið þitt verði narsissisti
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta er það sem Íslendingar vilji að erlendir ferðamenn hætti að gera

Þetta er það sem Íslendingar vilji að erlendir ferðamenn hætti að gera
Fókus
Fyrir 1 viku

Hollywood-elítan sögð hafa yfirgefið Harry og Meghan: „Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum“

Hollywood-elítan sögð hafa yfirgefið Harry og Meghan: „Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum“
Fókus
Fyrir 1 viku

Hjartaskurðlæknir varar við mat sem margir borða daglega: „Eyðileggur hjartað hægt og rólega“

Hjartaskurðlæknir varar við mat sem margir borða daglega: „Eyðileggur hjartað hægt og rólega“