fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Dóttir mín er alltaf í iPadnum

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 2. ágúst 2020 19:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem hefur áhyggjur af skjátíma dóttur sinnar.

Ég held að dóttir mín sé með alvarlega skjáfíkn. Hún vill helst vera í símanum eða iPadnum frá hún vaknar og þar til hún fer að sofa. Ég skal viðurkenna að þetta vandamál er að hluta til okkur foreldrunum að kenna því við vorum greinilega ekki nógu ströng á skjátíma og þetta hefur því þróast áfram í þetta.

Stelpan okkar er tólf ára og það er farið að vera mjög erfitt fyrir hana að vakna á morgnana. Í vetur leyfðum við henni því stundum að fá iPadinn upp í rúm til að hún vaknaði frekar, og nú vaknar hún helst ekki án hans. Hún er alveg dugleg að hitta vinkonur og vera úti þegar það er gott veður, en þegar hún er heima vill hún bara vera á TikTok eða á YouTube.

Okkur foreldrunum finnst samband okkar við hana því vera að versna því við erum að fjarlægjast hana. Er þetta kannski bara hluti af því að verða táningur? Okkur finnst við þurfa að stíga inn með skýrum reglum en finnst við svolítið hafa klúðrað því að hafa ekki verið með þær frá upphafi. Hvernig er best að byrja á slíku? Væri gott að vera með verðlaunakerfi, og þá hvernig verðlaunakerfi?

Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðarfræðingur.

Áhugamál eða fíkn?

Sæl og takk fyrir spurninguna.

Þetta vandamál er eitthvað sem margir nútímaforeldrar kannast því miður of vel við og ef það væri til einföld lausn þá væru allir að nota hana. Það fyrsta sem mér dettur í hug er hvort hægt sé að vekja áhuga á einhverju öðru en Ipad og síma? Getur verið að stelpunni ykkar leiðist eða að önnur áhugamál geti dregið úr skjátímanotkun? Þið nefnið TikTok og YouTube, þar er t.d. að finna dans og tónlist. Er það eitthvað sem hægt er að virkja á öðrum vettvangi?

Þegar stelpur eru spurðar hvað það er sem framkallar helst hjá þeim jákvæða sjálfsmynd þá nefna þær eitthvað sem tengist áhugamálunum þeirra. Sem dæmi má nefna: góð í fótbolta, flink að syngja eða gaman að lesa og teikna. Ástæðan er sennilega sú að þarna finna þær fyrir forskoti á jafningja sína, finna til sín og vita að þær eru sterkar á ákveðnu sviði. Þetta er mjög mikilvægt, en okkur fullorðna fólkinu hættir til að ákveða að áhugamál séu bara eitthvað sem börn æfa milli kl. 15–17 á virkum dögum. Þar gætir ákveðins misskilnings því áhugamál geta tengst einhverju sem þær búa yfir mikilli þekkingu á og hafa kynnt sér vel. Það getur verið áhugamál að safna frímerkjum eða servíettum. Sömuleiðis getur það verið áhugamál að vita mikið um nútímatónlistarsögu eða kunna að útbúa sykurmassaskreytingu á köku. Um allt framangreint er hægt að afla sér þekkingar á YouTube.

Getur verið að þið getið aðstoðað hana við að verða virkari, vekja hjá henni áhuga á einhverju í raunheimum, einmitt með aðstoð þess sem hún elskar hvað mest þ.e. YouTube? Í þessu samhengi velti ég því fyrir mér hvort það geti verið ráð að ákveða hvort þið viljið leggja áherslu á minnkaðan skjátíma eða uppbyggilegan skjátíma. Má hún vera í Ipadnum eða síma ef hún er að sinna heimanámi? Kynna sér eitthvað efni sem hún hefur áhuga á? Er hún sterk í félagslegum samskiptum? Nýtir hún símann í þau og gerið þið þá undantekningu á skjánotkun? Væri s.s. hægt að nýta áhuga hennar á símanum til þess að hún afli sér þekkingar sem raunverulega getur nýst henni, styrkt hana og eflt? Þarna reynir einmitt á ykkur foreldrana og samband ykkar við dóttur ykkar sem þú nefndir að hafi dofnað í tengslum við skjánotkun. Er hægt að snúa þessu við og efla ykkar tengsl með því að blanda ykkur inn í líf hennar á skjánum?

Jákvæð styrking

Mér er mjög minnisstætt viðtal sem ég horfði á fyrir nokkru við norskan föður fatlaðs drengs. Drengurinn var með hrörnunarsjúkdóm og hafði verið rúmliggjandi í mörg ár. Hans eina afþreying var í gegnum tölvu en hann var virkur í tölvuleiknum World of Warcraft.

Foreldrar hans höfðu miklar áhyggjur af skjánotkun hans, en fötlunarinnar vegna var ekki mikið annað í boði. Því miður lést drengurinn þeirra rúmlega tvítugur að aldri. Þegar það gerðist fór foreldrum hans að berast samúðarskeyti frá hinum ýmsu heimshornum. Í jarðarförina mættu vinir hans, mörg hver með flugvél frá fjarlægum löndum. Á þessu augnabliki áttuðu foreldrar hans sig á því að strákurinn þeirra var virkur þátttakandi í fremur fordómalausu samfélagi þar sem hann átti vini og kærustu, þar sem hann var samþykktur og laus við allar sínar hamlanir.

Ein mesta eftirsjá foreldra hans sneri að því að þau höfðu ekki kynnt sér hvað hann var að gera í tölvunni. Aftur á móti mættu þau á hvern einasta handboltaleik hjá dóttur sinni, þekktu allar stelpurnar í liðinu hennar, foreldra þeirra og þjálfarann. Líf sonarins var þeim algjörlega óþekkt og í viðtalinu hvöttu þau foreldra til þess að fylgjast með og kynna sér, reyna að taka þátt í því sem börnin þeirra eru að gera í tölvunni. Þetta er að sjálfsögðu dálítið ýkt dæmisaga en þetta minnir okkur á að í tækninni felst líka framtíðin og við foreldrar þurfum að kynna okkur hana vel til þess að geta verið virkir þátttakendur í lífi barnanna okkar.

Nú svo er það margsannað að rammi, mörk, jákvæð styrking og skýr skilaboð reynist börnum frekar vel. Öll óvissa getur kallað á kvíða, við hræðumst það sem við þekkjum ekki. Ef barnið ykkar er óvisst með hvað annað hún getur gert eða hversu langur skjátíminn hennar raunverulega er, þá getur það einmitt hvatt hana til frekari skjánotkunar. Ef börn halda að þau séu að fara að missa skjátíma þá nota þau þann tíma sem þau hafa í skjáinn. Í jákvæðri styrkingu felst að það sem barninu ykkar finnst eftirsóknarvert er notað sem verðlaun í stað refsingar. Að stelpan ykkar fái skjátíma þegar hún er búin að sýna hegðun sem er æskileg. Sem dæmi má nefna að ef hún fer fram úr, borðar morgunmat, burstar tennur og býr um rúmið sitt, er þá í boði að fá skjátíma? Ef um refsingu væri að ræða þá yrði skjátíminn minnkaður yfir daginn ef hún myndi grípa í símann um leið og hún vaknar. Fyrri möguleikinn er líklegri til árangurs en sá seinni.

Kynnist barninu betur

Ég skil áhyggjur ykkar vel, kæru foreldrar, en mín hvatning til ykkar snýr að því að snúa vörn í sókn. Reynið að beina hegðun dóttur ykkar í jákvæðari farveg með því að gefa henni það sem henni finnst eftirsóknarvert (skjátíma) þegar hún hefur sýnt þá jákvæðu hegðun sem þið viljið sjá. Kynnið ykkur hvað hún er að fást við og hvort hægt sé að efla hana á sömu sviðum í raunheimum. Endilega verið skýr, setjið ramma og munið að þið eruð foreldrarnir sem megið draga mörk. Að lokum, þetta er landlægur vandi og það eitt hvað þið hafið miklar áhyggjur af þessu gefur mér merki um að þið eruð að gera eitthvað rétt. Haldið áfram að vanda ykkur svona og þá verður þetta allt í lagi.

Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com.

 Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálfsögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Travis Barker gagnrýndur fyrir að birta mynd af Kourtney á klósettinu

Travis Barker gagnrýndur fyrir að birta mynd af Kourtney á klósettinu
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Eyjan
Fyrir 4 klukkutímum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Ert með ofnæmi fyrir hundum? Þá gætirðu líka verið með lítt þekkt kynlífsofnæmi

Ert með ofnæmi fyrir hundum? Þá gætirðu líka verið með lítt þekkt kynlífsofnæmi
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Guðmundur H. Garðarsson er látinn

Guðmundur H. Garðarsson er látinn
Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Þetta er ástæðan fyrir að þú átt ekki að nota símann þegar þú ert á klósettinu

Þetta er ástæðan fyrir að þú átt ekki að nota símann þegar þú ert á klósettinu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar

Norski áhrifavaldurinn nú komin með athyglisverðan titil – Sjáðu nýjustu myndir hennar