fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

10 stjörnubörn í sviðsljósinu

Fókus
Sunnudaginn 16. febrúar 2020 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oft er staðreyndin sú að börn frægra verða merkt foreldrum sínum og það sem foreldrarnir standa fyrir. Það getur því verið erfitt fyrir listafólk að taka flugið þegar skuggi foreldranna umlykur allt. Til eru margar og mismunandi sögur um börn frægra einstaklinga sem ná ekki mikilli festu í lífi eða atvinnu sökum þessarar staðreyndar.

Neðangreindur hópur tíu hæfileikra Íslendinga tilheyrir þó ekki þessum flokki og sýnir fram á að hægt er að ryðja eigin braut. Þetta eru börn frægra Íslendinga sem þykja sérstaklega hæfileikarík.

 

Spuni, tónlist og Heilabrot

Steiney Skúladóttir hefur gert það gott í hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum, en hún er dóttir leikkonunnar Halldóru Geirharðsdóttur. Steiney hefur að auki sungið með hljómsveitinni Þrjár basískar, unnið með spunahópnum Improv Ísland og hún var einn aðstandenda sjónvarpsþáttanna Heilabrot.

 

Góð rödd í genunum

Salka Sól
Frægðarsól tónlistarkonunnar Sölku Sólar Eyfeld hefur risið hátt á undanförnum árum. Salka var lengi þáttastjórnandi á Rás 2 og stjórnaði meðal annars þættinum Rabbabara til ársins 2018. Salka var einn af fjórum dómurum í The Voice Ísland. Hún hefur einnig tekið þátt í uppsetningu fyrir Þjóðleikhúsið, verið kynnir í Söngvakeppni sjónvarpsins og vann Íslensku tónlistarverðlaunin 2015 í flokknum Söngkona ársins. Salka er dóttir Hjálmars Hjálmarssonar leikara, sem er – auk margs annars – einn þekktasti talsetningarleikari landsins. Salka hefur því ekki þurft að sækja hæfileikana langt enda hefur hún verið í sambærilegum pakka á síðustu misserum. 

 

Sonur Stuðmanns og þjóðleikhússtjóra

Ólafur Egill Egilsson hefur marga fjöruna sopið, bæði í leiklistinni og skrifum. Ólafur skrifaði handrit kvikmyndanna Brúðguminn, Brim, Eiðurinn og Kona fer í stríð. Fyrir handritið að Kona fer í stríð unnu Ólafur og meðhöfundur hans og leikstjóri kvikmyndarinnar, Benedik Erlingsson, SACD-verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes, Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs auk hinna íslensku Edduverðlauna. Ekki þarf að efast um að foreldrar Ólafs, þau Egill Ólafsson tónlistarmaður og Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona, séu afar stoltir af sínu afsprengi.

 

Vargur góður

Baltasar Breki Samper, sonur Baltasars Kormáks, hefur gert það gott í að feta í fótspor föður. Baltasar hefur staðið sig með prýði á leiksviðinu, í sjónvarpi og þótti sérlega góður í glæpamyndinni Vargi. Einnig skaut hann upp kollinum í sjónvarpsþáttunum Chernobyl. Hann er rétt að byrja.

 

Heimsfræg fyrir þrítugt

Leikkonan Hera Hilmarsdóttir hefur verið gífurlega virk í starfi vestanhafs og víðar. Hún er rétt skriðin á fertugsaldurinn og hefur vakið mikla athygli undanfarin misseri fyrir hlutverk sitt í þáttunum See, þar sem hún deilir skjánum með hinum eftirsótta Jason Momoa, og stórmyndinni Mortal Engines. Hera er dóttir leikkonunnar Þóreyjar Sigþórsdóttur og leikstjórans Hilmars Oddssonar, og barnabarn leikskáldsins Odds Björnssonar og hefur hún staðið sig með ágætum sem stjarna á eigin vegum.

 

Svöl í sviðsljósinu

Poppstjarnan Svala, dóttir Stóra Bó, gaf út sína fyrstu plötu,The Real Me, árið 2001 og fékk fínar viðtökur. Svala tók þátt í Eurovision-keppninni árið 2017 í Úkraínu þar sem hún flutti lagið Paper. Hún tók sér einnig sviðslistanafnið Kali þegar hún gekk til liðs við hljómsveitina Steed Lord og stofnaði einnig fatalínu undir því nafni. Svala er þekkt fyrir glæsilegan og eftirtektarverðan fatastíl og má því segja að hún komi til dyranna eins og hún er klædd. Svala stendur svo sannarlega undir nafni.

 

Nýútskrifaður og með Netflix-mynd í pípunum

Hlynur Þorsteinsson útskrifaðist sem leikari úr Listaháskóla Íslands árið 2018, en hann er sonur leikarans og uppistandarans Þorsteins Guðmundssonar og Jóhönnu Halldórsdóttur söngkonu. Hlynur fagnaði nýlega eins árs afmæli frumburðar síns og hefur skammarlaust skilgreint sig sem mikla fótboltabullu. Á næstunni má sjá Hlyni bregða fyrir í Eurovision-kvikmyndinni sem Netflix framleiðir og skartar Will Ferrell í aðalhlutverki.

 

Á hraðri uppleið

Eygló Hilmarsdóttir, sem útskrifaðist nýverið af leiklistarbraut Listaháskóla Íslands, fetar rækilega í fótspor foreldra sinna en það eru leikararnir Sóley Elíasdóttir og Hilmar Jónsson. Áður en Eygló hóf nám við skólann lék hún í Konubörnum í Gaflaraleikhúsinu og Höllu í kvikmyndinni Gauragangi. Eygló lék jafnframt í sýningum Herranætur í Menntaskólanum í Reykjavík, þar á meðal Títaníu álfadrottningu í Draumi á Jónsmessunótt.

 

Afkastamikill grænkeri

Armundur Ernst Björnsson hefur verið á gífurlegu flugi undanfarin ár. Það fór lítið fyrir honum við upphaf ferils, þegar hann lék fyrst lykilhlutverk í bíómyndinni Strákarnir okkar, en frá og með 2018 hefur honum brugðið fyrir í þáttum á borð við Flateyjargátan, Ófærð og Venjulegt fólk og kvikmyndunum Agnes Joy og Hvítur, hvítur dagur. Arnmundur hefur reglulega tjáð sig um lífsstíl sinn sem grænkeri og ekki síður erfiðleikana sem fylgdu veikindum móður hans, Eddu Heiðrúnar Backman, sem lést í október 2016 úr MND-sjúkdómnum. Faðir Arnmundar er Björn Ingi Hilmarsson leikari. Armundur fer einnig, eins og svo margir Íslendingar, með lítið hlutverk í Eurovision-kvikmyndinni sem landsmenn bíða óþreyjufullir eftir.

 

Sjóaður í söng og á sviði

Haraldur Ari Stefánsson, sonur Stefáns Jónssonar leikara, vakti mikla athygli í Rocky Horror-sýningu Borgarleikhússins fyrir nokkrum árum. Haraldur á þó meira að baki en einungis leiklistina enda söngvari og slagverksleikari hljómsveitarinnar Retro Stefson og hefur verið frá stofnun hennar. Haraldur yfirgaf klakann um nokkurt skeið þegar hann stundaði leiklistarnám í London í Royal Central School of Speech & Drama. Spennandi verður að fylgjast með næstu árum hans.

 

HLIÐAREFNI

 

Fleiri stjörnubörn: (textabox)

Aðalbjörg Árnadóttir leikkona (dóttir Árna Péturs Guðjónssonar)

Björgvin Franz Gíslason skemmtikraftur (sonur Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars Jónssonar)

Ólöf Jara og Elísabet Skagfjörð leikkona (dætur Valgeirs Skagfjörð og Guðrúnar Gunnarsdóttur)

Orri Hugin Ágústsson leikari (sonur Kolbrúnar Halldórsdóttur, fyrrverandi þingkonu)

Saga Sigurðardóttir dansari (dóttir Ólínu Þorvarðardóttur)

Snæfríður Ingvarsdóttir leikkona (dóttir Ingvars E. Sigurðssonar og Eddu Arnljótsdóttur)

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“

Faðir Olgu var einn þekktasti læknamiðill landsins – „Hann vissi allt“