Tónlistarmennirnir Auðunn Lútersson og Matthías Tryggvi Haraldsson voru báðir teknir fyrir í áramótaskaupinu í ár en óhætt er að segja að þeir hafi skarað fram úr þegar litið er til íslensks tónlistarlífs á liðnu ári. Sjálfur birti Auðunn, sem alla jafna gengur undir listamannsnafninu Auður, mynd af þeim félögum á samfélagsmiðli sínum þar sem hann uppljóstrar annars lítt þekktum kynnum sín við söngvara sveitarinnar Hatari. Undir myndinni skrifar hann:
„Bekkjarbræðurnir úr 5.A teknir fyrir í Skaupinu. Stemning.“
Atriðin sem um ræðir lúta annars vegar að grímuklæddum öskudagsbörnum sem öll vildu líkjast meðlimum Hatara. Hins vegar að áhrifagjörnum mönnum sem gerðust samkynhneigðir við það eitt að horfa á leikhópinn Lottu og eru síðar freðnir eftir að hafa hlustað á samnefnt lag í flutningi Auðs en textinn í tilteknu lagi sætti talsverðri gagnrýni á árinu þótt fjölmargir listamenn hafi í kjölfarið stigið fram og gagnrýnt gagnrýnina. Umrædd atriði má sjá á vef RÚV.
Hér má sjá umrædd atriði.
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/aramotaskaup-2019-sketsar/29820/8scaun
https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/aramotaskaup-2019-sketsar/29820/8scauk