Smáforritið FaceApp hefur heldur betur verið í umræðunni síðustu daga með tilurð nýrrar viðbótar. Sú viðbót gerir fólki kleift – með aðstoð dýnamískrar gervigreindar – að skoða hvernig útlitið verður á einstaklingum á komandi árum.
Fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar hafa verið duglegir að deila sínum niðurstöðum á samfélagsmiðlum en Fókus ákvað að ganga skrefinu lengra og skoða hvernig eftirfarandi fólk muni líta út í ellinni.
Útkoman gæti komið þér á óvart.