Óhætt er að segja að mál sem Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður sá um fyrir Mannréttindadómstól Evrópu hafi varpað sprengju inn í íslensk stjórnmál. Var Sigríður Andersen dómsmálaráðherra fundin sek um að hafa brotið gegn landslögum með skipun dómara í Landsrétt og þurfti hún að segja af sér í kjölfarið. Vilhjálmur hefur verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni og talinn til stjörnulögfræðinga.
Yngri bróðir Vilhjálms er Ingi Freyr Vilhjálmsson, hinn skeleggi blaðamaður hjá Stundinni. Ingi var áður blaðamaður hjá DV og Fréttablaðinu. Ingi hefur verið búsettur í Svíþjóð síðan árið 2013 og skrifar þaðan.