fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Hver eru þín bestu kaup í Costco? Viðskiptavinir leysa frá skjóðunni

Íris Hauksdóttir
Sunnudaginn 3. nóvember 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það mikla það margir fyrir sér að mæta á mannmarga staði enda getur það valdið taugaveiklun að vita ekki hvorum megin við afgreiðsluborðið sé best að standa eða hvaða tilboðum borgi sig að fjárfesta í. Costco er óumdeilanlega einn slíkra staða enda er úrvalið mikið og oft erfitt að þverfóta þar inni fyrir verslunarglöðum viðskiptavinum. Til að auðvelda áhrifagjörnum valkvíðasjúklingum leitina fengum við ráð frá nokkrum fastakúnnum keðjunnar um þeirra bestu kaup í Costco.

1. Leikföng

„Börnin myndu þó segja dótið, enda er oft hægt að finna sniðugt dót á góðu verði. Við kaupum til að mynda mikið af litum í Costco og afmælis- og jólagjafir, það hentar ótrúlega vel því körfurnar eru á stærð við sendiferðabíl.“

Knúsandi apar Þessi eru vinsælir meðal álitsgjafa DV.

„Ég veit ekki hvort það flokkist sem bestu kaupin en þau kaup sem hafa vakið hvað mesta lukku og verið í langmestri notkun er Frozen-kastali sem ég keypti fyrir dóttur mína í afmælisgjöf. Skemmst frá því að segja að flykkið fyllir upp í hálft barnaherbergið og myndi seint teljast Instagram-fallegt en börnin elska hann og geta endalaust leikið sér, þar sem hvers kyns barbie-, pony- og aðrar fígurur fá þak yfir höfuðið.“

Vá Margir tóku andköf þegar að Frozen-kastalinn mætti á svæðið.

„Vinsælast núna eru klárlega leikföngin og blessað jóladótið. Að mínu mati geta bestu kaupin líka verið bestu tilboðin. Mér finnst hugsunin hjá Costco vera sú að gera gott fyrir alla og það tekst vel með þeim vöruflokkum sem þar er boðið upp á. Annars finnst mér verslunin vera að toppa sig þetta árið þegar kemur að leikföngum en hún er líka að verða sífellt betri þegar kemur að mat- og sérvöru.“

„Um síðustu jól freistuðumst við til þess að kaupa stóra bangsann sem flestir alvöru Costco-unnendur kannast eflaust við. Hann var jólagjöf fyrir dætur okkar en þær voru lengi búnar að óska eftir honum. Það reyndst svo þrautin þyngri að fela hann fyrir þeim næstu tvo mánuði fyrir jól enda plássfrekur svo ekki sé meira sagt. Þær hafa síðan þá skipst á að sofa með hann í rúmunum sínum þar sem hann hendir þeim reglulega fram úr.“

„Dótið allan daginn enda er ég löngu hættur að fara í venjulegar dótabúðir.“

„Ég keypti frábæra plöstunarvél í Costco, hræódýra, um tvö þúsund og fimm hundruð krónur. Hún hitnar hratt og plastar vel, æðisleg fyrir alls konar föndur og sniðug til að plasta myndir sem börnin gera og mann langar að varðveita.“

Stór og stæðilegur Frægi Costco-bangsinn.

2. Hreinslætisvörur

„Bestu kaupin að mínu mati eru klárlega klósettpappírinn, hreinlætisvörur, bakkelsið, allar Kirkland Signature-vörurnar ásamt ýmiss konar sérvörum, fötin og að sjálfsögðu lyfin.“

Góður hreinsilögur Allavega að mati álitsgjafa DV.

„Dettol-þvottasótthreinsirinn er algjör snilld. Það hefur ekki komið vond lykt í þvottinn hjá mér síðan ég byrjaði að nota þetta, hentar bæði fyrir íþróttaföt, dökkan fatnað sem og kúka- og æluvélarnar sem ég er mikið að vinna með þessa dagana. Mæli með.“

„Þvottaefni, bæði í föstu og fljótandi formi er frábært í Costco. Stóru Tork-eldhúsrúllurnar eru sömuleiðis mögnuð kaup og pítsurnar þarna eru líka mjög góðar.“

3. Ísvagninn

„Ég keypti líka ísvagn fyrir litla frænku sem sló heldur betur í gegn.“

Sló í gegn Ísvagninn góði.

„Já, ég fjárfesti einmitt í þessum ísbíl líka fyrir dóttur mína í þriggja ára afmælisgjöf í fyrra. Græjan sló heldur betur í gegn og hefur verið í daglegri notkun síðan. Þetta er án efa það leikfang sem er mest notað á heimilinu auk þess að vera afar vinsælt hjá gestum af yngri kynslóðinni. Herlegheitin kostuðu í kringum fimm þúsund og hljóta því að flokkast sem sannkölluð kjarakaup.“

4. Bensín

„Mín bestu kaup hjá Costco er eflaust eldsneytið enda færðu það ekki ódýrara – það munar þrjátíu krónum á lítranum samanborið við aðra staði. Að því sögðu er ekkert alltaf ódýrast að versla í Costco en þú getur gengið að gæðunum vísum hjá þeim. Ég og aðrir sem ég þekki og versla þar segjum að fara í Costco er að fara í annan heim, allt er svo mikið og stórt og það eykur ánægjuna af að versla þar. Þú sérð ánægju í andliti fólks sem verslar í Costco sem þú varst hættur að sjá. Ávextir og grænmeti er fyrsta flokks sem fólk hafði ekki séð nema erlendis þar til Costco kom hingað til lands. Það er ein af ástæðum þess að viðskiptavinir eru svona ánægðir.“

Bensínið heillar Það er sjaldséð að sjá bensínplanið tómt þegar er opið í Costco.

„Ég fylli alltaf á bílinn.“

5. Bækur

„Harry Potter-bókasettið flokkast án efa undir bestu kaup sem ég hef gert í Costco. Ég var búin að setja það í og taka úr Amazon-körfunni minni í nokkur ár en gat aldrei réttlætt sendingarkostnaðinn enda frekar þungt stöff. Ég var því afar hamingjusöm þegar ég sá það í Costco fyrir jólin í fyrra á tæpan sex þúsund kall.“

„Ég á níu ára stelpu sem heldur að hún sé 35 ára og þráir fátt meira en að lesa bækur á ensku. Þar kemur Costco eins og bjargvættur og lætur mig líta út eins og bestu mömmu í heimi.“

Hvað mælir þú með að sé keypt?

„Ég kaupi alltaf Applewood-ostasneiðarnar, Good Life-baunaborgarann, Paneer-ostinn, pastað, hummusinn, Mini Carter d’or-ísinn, þistilhjörtun í olíu og hlynsírópið.“

„Við elskum að kaupa kjöt og skipta því svo niður í minni einingar og frysta. Það sama á við um áleggið. Svo kaupum við alltaf vítamín, en við reynum að kaupa ekki lífstíðarbirgðir af neinu.“

„Ég mæli með að kaupa blátt Powerade, sérstaklega nú þegar Bónus hefur hækkað verðið á því. Ég kaupi líka alltaf stóran parmesanost, tómata og spagettí. Ég mæli líka með bílavörunum þeirra, verkfærunum, vinnuvettlingum og málningarpenslum – þú færð tuttugu og fjögur stykki af penslum á sextán hundruð krónur. Mæli með þeim.“

„Númer eitt, tvö og þrjú er Di Bufala Mozzarella-osturinn enda er hann langbestur á pítsuna. Ég fer oft sérferð í Costco bara fyrir þennan ost. Ég er oftast gaurinn með tvær fötur af osti í röð á kassa og að því sögðu vantar sárlega hraðkassa fyrir okkur fólkið sem kaupir fáar vörur. Hann er þó ekki alltaf til sem gerðir sérferðina hrikalega svekkjandi.“

„Við sækjum alltaf harðfisk í Costco, bláber, jarðarber og stundum avókadó og tómata. Ég freistast mjög oft til að kaupa tilbúna kjúklingavængi, en tilbúni kjúklingurinn þar er sömuleiðis mjög braðgóður. Stundum kaupi ég „baby back ribs“ líka svo ávaxta- og grænmetisdeildin ásamt kjötvörunum er mitt „go to“.“

Fyrir fólk á ferðinni Tilbúinn kjúklingur er alltaf klassískur.

„Ég myndi segja að smokkarnir séu klárlega fastur liður, ásamt klósettpappír, rafhlöðum og litlu paprikunum. Mesta snilldin er samt bílstólarnir sem ég keypti þar fyrir stuttu sem og barnavagninn sem ég keypti í fyrra.“

Öryggið á oddinn Smokkarnir koma sterkir inn.

„Ég kaupi alltaf kaffi í Costco, uppþvottaefni, hreinsivörur og dýrafóður – að eldsneytinu ógleymdu.“

„Sko í mínum huga kaupi ég alltaf bara hakk og klósettpappír þegar ég fer í Costco, en samt kem ég alltaf út þrjátíu þúsund krónum fátækari svo eitthvað hlýt ég að vera að kaupa fleira.“

„Ég mæli með næturbrókum í Costco, frábærar fyrir eldri undirpissara.“

„Ég mæli með Deep heat roll-on sem og blautklútunum. , kaupi tilbúinn kjúkling, litlar sódavatnsflöskur, klósettpappír, collagen, vítamín, prótein og orkustykkin.“

„Ég mæli með ostakúludollununum sem fást í Costco, við keyptum svona um daginn fyrir afmæli hjá stelpunni okkar og hún kláraðist á örskotstundu. Fáranlega góð.“

Risadunkur Það þarf einbeittan brotavilja til að klára þennan.

Álitsgjafar:

Atli Már Ágústsson, Engilbert Arnar, Elsa Yngvadóttir, Finnur Marinó Flosason, Margrét Björk Jónsdóttir, Hildur Friðriksdóttir, Linda Jóhannsdóttir, Rafn Einarsson og Viðar Friðriksson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki