Hertogaynjan í Sussex, Meghan Markle, er að fæða sitt fyrsta barn þessa stundina samkvæmt heimildum Sky News.
Hertogahjónin hafa aldrei nefnt settan fæðingardag og sögðu aðeins að erfinginn væri væntanlegur í vor. Meghan og Harry Bretaprins hafa einnig farið leynt með hvar barnið verður fætt.
„Það var snemma í morgun þegar hertogaynjan fór af stað og var hertoginn við hennar hlið,“ segir konungsfréttaritari Sky News.
UPPFÆRT 13:44
Hertogahjónin bjóða son velkominn í heiminn. Harry Bretaprins tilkynnti áðan að Meghan hafði fætt son og sagðist vera „í sjöunda himni“ og þakkaði almenning fyrir stuðninginn á meðgöngunni. Hann sagði að þau væru enn að hugsa um nöfn fyrir barnið.