

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tekst á við nýtt verkefni í sumar, en hún er tekin til starfa sem flugfreyja hjá Iceland Air. Ragnhildur er 28 ára er með BS-gráðu í sálfræði og er MS-nemi í þjónustustjórnun.
„Spennið beltin og njótið vinir og vandamenn,“ segir Ragnhildur á Facebook-síðu sinni „Það verður öldugangur í háloftunum í sumar og ég kem til með að stjana við ykkur.“
