Að sögn Jónínu er markmið fyrirtækisins að flytja inn vörur frá ýmsum löndum, auglýsa og selja í gegnum netið. Áhersla verður lögð á heilsuvörur, sem hún og viðskiptavinir hennar í gegnum tíðina þekkja vel og hafa beðið um. Þá segir hún einnig að verðið verði gott.
Það eru þó ekki einungis heilsuvörur sem munu fást í nýju vefbúðinni sem hefur starfsemi í Póllandi. Meðal þess fyrsta sem hún flytur inn er veglegt matarstell.