fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Pössuðu upp á að Víkingur Heiðar kæmi ekki fram hjá Hemma Gunn

Fókus
Þriðjudaginn 31. mars 2026 16:30

Víkingur Heiðar Ólafsson. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingur Heiðar Ólafsson, einn þekktasti tónlistarmaður Íslands á alþjóðasviðinu, segir að vandlega hafi verið gætt að því að hann næði ekki hápunkti ferilsins of snemma.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Víking Heiðar í Rokklandi á Rás 2 sem fjallað er um á vef RÚV.

Víkingur Heiðar hefur haft mörg járn í eldinum og eru fram undan þrennir tónleikar í Hörpu í vikunni.

Í viðtalinu fer hann um víðan völl og segir meðal annars að það sé ekkert verra en að toppa of snemma. Foreldrar hans voru meðvitaðir um þetta og stóðu í vegi fyrir því að hann kæmi til dæmis fram í sjónvarpi sem ungur og lítill píanósnillingur.

„Ég held að það hafi verið geggjað fyrir mig og minn fókus að hafa fengið að spila tónlist út frá gleði. Þannig að ég byrja í rauninni að æfa mig brjálæðislega mikið þegar ég var 12, 13 ára. Ég var rosa góður á píanó en það var ekki verið að reyna að setja mig í Hemma Gunn. Það var passað upp á að ég færi ekki í Hemma Gunn. Þau unnu gegn því. Ég er þakklátur fyrir það,“ segir hann meðal annars í viðtalinu.

Hann ræðir einnig námið í Julliard-tónlistarskólanum í New York og bendir á að krakkarnir sem voru með honum í píanóbekknum hafi fæst átt venjulega æsku eins og hann.

„Þau voru mörg að lenda í því að prófa sig áfram í því sem ég var löngu búinn að prófa. Margir keyptu sér Playstation og byrjuðu að drekka, byrjuðu að gera alls konar sem var ekkert sérstaklega gott fyrir þau.“

Viðtalið við Víking Heiðar má nálgast hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslandsvinurinn Grohl fer til sálfræðings sex sinnum í viku eftir framhjáhaldið – „Ég þurfti að slökkva á öllu“

Íslandsvinurinn Grohl fer til sálfræðings sex sinnum í viku eftir framhjáhaldið – „Ég þurfti að slökkva á öllu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“

Leyndarmálið úr æsku Steinunnar Ólínu verður enn myrkara – „Ég vildi komast lifandi heim tíl mín“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“

Ingó aflýsir tónleikum: „Komið var í veg fyrir það að þessu sinni“