fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Fókus

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær – „Það er verið að ögra mér. Ég veit það“

Fókus
Þriðjudaginn 31. mars 2026 07:39

Screenshot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson vakti athygli í síðustu viku þegar hann steig fram og gagnrýndi notkun RÚV á ákveðinni tegund hljóðnema.

Um þetta skrifaði Jóhannes skemmtilega færslu á Facebook þar sem hann sló á létta strengi og sagði meðal annars:

„Hljóðnemarnir sem eru notaðir í Silfrinu eru AÐ GERA MIG GEÐVEIKAN!!!“

Sjá einnig: Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær:„Plís! Ég get ekki meir!!!“

Um er að ræða hljóðnema á statífum og koma upp úr borðinu í gegnum rifu. Eins og kom fram í gagnrýni hans er hann þeirrar skoðunar að þetta sé langt því frá besta leiðin til að skila heim í stofu því sem fólk er að segja.

„Ég held að það sé nokkuð samþykkt í heimi hljóðvinnslu að svokallaðir hnappamækar séu langbestir í þetta,“ sagði Jóhannes meðal annars.

Þessu er ekki lokið

Hafi hann búist við því að ákall hans myndi leiða til breytinga skjátlaðist honum, eins og sást glögglega í Silfrinu í gærkvöldi.

„Þáttastjórnandinn var með hnappamæk í fréttatímanum en svo er haft fyrir því að taka hann af og nú sitja hann og Bjarni báðir með þessa borðmæka í skúffum fyrir framan sig,“ sagði Jóhannes Haukur í færslu í gærkvöldi og birti myndir máli sínu til stuðnings.

Þar má annars vegar sjá Bergstein Sigurðsson, umsjónarmann Silfursins, með hnappamæk þegar hann kynnir efni þáttarins en svo þegar hann ræddi við Bjarna Benediktsson, fyrrverandi fjármálaráðherra og núverandi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, voru borðmækarnir mættir.

Jóhannes Haukur endaði færsluna sína svona:

„Það er verið að ögra mér. Þetta er persónulegt. Ég veit það. Ég finn það. Það svíður. Það brennur. Þessu er ekki lokið. Nú segi ég upp áskriftinni…Æ já.”

Í athugasemd undir færslunni benti Jóhannes á að umræddir borðmækar væru til komnir vegna Covid-heimsfaraldursins.

„Fyrir faraldurinn mikla voru allir með hnappamæk í þessu setti. ALLIR. Þetta var gert til að minnka snertingu milli manna. Það er ekki eins og það hafi verið ákveðið að skipta í þetta borðdrasl til að bæta hljóðgæði þáttarins. Það er mjög triggerandi að sjá þetta (svo ekki sé minnst á að heyra dynkina og skrjáfið). Þessir borðmækar eiga jafnmikið heima þarna eins og grímur yfir vitum viðmælenda. Ég þoli þetta ekki. Bara alls ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni

Fékk áfall þegar hún kíkti í síma eiginmannsins – Það var bara upphafið að martröðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa

Fréttin sem Jóhann Hlíðar neitar að skrifa
Fókus
Fyrir 1 viku

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni

Kynlífsstellingar til að prófa um páskana – Páskakanínan og danglaðu gulrótinni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix

Ertu að fara gifta þig? Þá skaltu ekki horfa á þessa nýju seríu á Netflix