

Alríkisdómari í Rhode Island hefur úrskurðað að Hatch skuldi bandarískum stjórnvöldum tæpar 3,3 milljónir dala, auk vaxta.
Skuldin tengist sigri hans í fyrstu þáttaröðinni árið 2000, en eftir sigurinn varð hann umsvifalaust eitt þekktasta andlit raunveruleikaþáttasögunnar.
Samkvæmt dómsniðurstöðunni nær skattakrafan til áranna 2000, 2001 og 2012, og heimilar bandarískum yfirvöldum nú að hefja formlega innheimtu með öllum tiltækum úrræðum, þar á meðal kröfum á eignir.
Hatch, sem er 64 ára, var sjálfur í fyrirsvari í málinu og hefur þegar áfrýjað niðurstöðunni til alríkisáfrýjunardómstóls. Hann segist sannfærður um að áfrýjun muni leiða til réttlátrar niðurstöðu en hann hefur haldið því fram um árabil að skattar af vinningnum hefðu átt að greiðast af CBS eða framleiðendum þáttanna.
Skattadeilan á rætur að rekja til þess þegar bandaríska skattayfirvaldið IRS taldi Hatch ekki hafa greitt skatta af bæði verðlaunafénu og öðrum tekjum. Hann var sakfelldur árið 2006 vegna rangra skattframtala hlaut hann rúmlega fjögurra ára dóm vegna málsins. Þrátt fyrir það hefur einkamálið um eftirstöðvar skuldarinnar dregist á langinn í rúman aldarfjórðung.